Persónukjör, jafnrétti og lýðræði Margrét Cela skrifar 15. nóvember 2010 11:00 Í niðurstöðum þjóðfundar er að finna sterka kröfu um persónukjör, sem tæki til að auka lýðræði. Sú kosning sem fer fram þann 27. nóvember til stjórnlagaþings gæti orðið merkilegt skref í þá átt. Umræðan um persónukjör er vel við hæfi og til þess fallin að vekja okkur Íslendinga til umhugsunar um hvernig lýðræðislegast sé að hátta kosningum og vali á þeim fulltrúum sem taka sæti á Alþingi. En þrátt fyrir að traust til flokkana sé í lágmarki og þörfin fyrir breytingar mikil er málið þó ekki svo einfalt og ekkert kerfi er gallalaust. Það þarf því að vega og meta kosti og galla þess kosningakerfis sem verður ofan á útfrá þeim gildum sem þjóðin setur í öndvegi. Finna þarf leiðir sem eru líklegar til að stuðla að réttlátu samfélagi, þar sem þegnarnir búa við jöfn tækifæri og á það við um kosningar líkt og annað. Persónukjör er að finna víða og til eru margar mismunandi útgáfur af því. Í Finnlandi er boðið uppá að velja einn óraðaðan lista, þ.e. fólk velur lista þess flokks sem því hugnast og raðar upp frambjóðendunum í þeirri röð sem það óskar. Í Svíþjóð er boðið upp á raðaðan lista, þar sem kjósendur geta merkt sérstaklega við þann frambjóðanda sem þeim líst best á. Á Írlandi geta kjósendur forgangsraðað frambjóðendum þvert á flokka, en frambjóðendurnir eru einkenndir með merki síns flokks. Ástralir ganga skrefinu lengra en Írar, með því að skylda kjósendur til að raða öllum frambjóðendunum (ekki aðeins þeim frambjóðendum sem þeir hafa áhuga á). Einn af kostum persónukjörs er að það erum við sem ákveðum á kjördegi hvaða frambjóðendur njóta brautargengis, ekki flokkarnir. Stjórnmálamennirnir sækja því umboð sitt á beinni hátt til kjósenda og eru óháðari flokkunum. Á sama tíma skapar þetta ákveðnar hættur sem felast í því að hagsmunaaðilar öðlist auðveldara aðgegni að áhrifamiklum stjórnmálamönnum án milligöngu flokka. Það getur auðveldað þeim að kaupa sér aðstoð þeirra. Jafnréttismál vega þungt þegar hugað er að persónukjöri. Írska kerfið, sem notast við „single transfareble vote" rétt eins og komandi kosning til stjórnlagaþings, hefur verið gagnrýnt fyrir litla þátttöku kvenna. Hlutfall kvenna á írska þinginu er miklum mun lægra en á Íslandi. Það er einnig umhugsunarvert að eingöngu þriðjungur frambjóðenda til stjórnlagaþings eru konur. Því virðist sem karlar hafi ákveðið forskot á konur í persónukjöri. Hefur það meðal annars verið rakið til þess að þeir séu meira áberandi í fjölmiðlum og algengara að þeir gegni valdastöðum í samfélaginu. Það þýðir að konur þurfa að líkindum að kosta meiru til í kosningabaráttum, þrátt fyrir að vera að jafnaði með lægri laun. Það verður því áhugavert að sjá í kosningunni til stjórnlagaþings, hversu meðvitaðir íslenskir kjósendur verða um að kjósa kynin til jafns og stuðla með því að áframhaldandi og auknu jafnrétti kynjana á þessu sviði. Búast má við að verði skipt yfir í persónukjör muni þörfin á sértækum aðgerðum til að jafna stöðu kynjana í stjórnmálunum aukast. Fyrirsjáanlegt er því að verði persónukjör ofan á muni eðli kosningabaráttunnar breytast. Einstaklingar munu berjast um hylli kjósenda sín á milli, í stað hinnar hefðbundnu flokkabaráttu sem við þekkjum hér á landi í dag. Persónulegt fylgi einstaklinganna mun því vega þungt og baráttan verður ekki eingöngu á milli fólks úr andstæðum flokkum heldur einnig á milli samflokksmanna. Það hefur einnig sýnt sig að þekktir einstaklingar hafa ákveðið forskot á þá sem óþekktari eru, og búast má við að þeir eigi auðveldara uppdráttar sem hafa meira fé á milli handanna til að eyða í kosningabráttu. Rannsóknir hafa, svo ekki verður um villst, sýnt fram á jákvæða fylgni á milli útgjalda í kosningabaráttu og árangurs í kosningum. Í ljósi þess vantrausts á stjórnmálakerfið, sem ríkir í samfélaginu hefur þörfin fyrir upplýsta og yfirvegaða umræðu sjaldan verið meiri. Áður en hægt er að taka afstöðu til þess hvort persónukjör sé það sem hentar okkar samfélagi verður að meta kosti þess og galla. Það þarf einnig nauðsynlega að ræða um þær mismunandi útfærslur sem á því er að finna því þar getur himinn og haf skilið á milli. Persónukjör eitt og sér tryggir okkur ekki jafnrétti og lýðræði. Höfundur er frambjóðandi til stjórnlagaþings nr. 2534 og doktorsnemi í alþjóðasamskiptum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Landhelgisgæslan er óábyrg Vilhelm Jónsson Skoðun Staða eldri borgara á Íslandi í árslok 2025 Björn Snæbjörnsson Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Kolefnissporið mitt Jón Fannar Árnason Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Staða eldri borgara á Íslandi í árslok 2025 Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Landhelgisgæslan er óábyrg Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Nýtt ár, nýr veruleiki, nýtt samtal Kristinn Árni Hróbjartsson skrifar Skoðun Kolefnissporið mitt Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson skrifar Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Sjá meira
Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir Skoðun