Öruggt samfélag Arnfríður Guðmundsdóttir og Hjalti Hugason skrifar 25. nóvember 2010 14:19 Samfélag er öruggt og gott þegar það uppfyllir grundvallarkröfur um réttlæti, jafnrétti og félagslega velferð, það er gerir öllum kleift að njóta sín á eigin forsendum. Í því velferðarsamfélagi sem hér hefur mótast á síðustu áratugum hefur markvisst verið unnið að því að bæta íslenskt samfélag og gera það öruggara fyrir borgarana. Jafnt aðgengi að menntun og heilbrigðisþjónustu hefur verið forgangsatriði. Í hugum margra eru þetta jafn sjálfsögð réttindi og að allir hafi fæði og húsnæði og geti notið kosningaréttar og tjáningarfrelsis. Sagan sýnir okkur að við getum aldrei tekið því sem gefnum hlut að fá að búa í góðu og öruggu samfélagi. Þessvegna er mikilvægt að í samfélagssáttmála okkar, stjórnarskránni, sé lagður grunnurinn að því að Íslendingar framtíðarinnar fái notið þeirra grundvallar mannréttinda sem gerir samfélagið öruggt og gott að lifa og starfa í. Þetta þarf að tryggja í nýrri stjórnarskrá. Í 71. grein stjórnarskrárinnar er fjallað um friðhelgi einkalífsins. Þar segir m.a.: „Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu." Gildi þess að eiga öruggt athvarf á heimili sínu er ómetanlegt. Slíkt skjól er undirstaða þess að eiga gott og öruggt líf, hvort sem við búum ein eða deilum kjörum með þeim sem standa okkur næst. Á undanförnum áratugum hefur umræða um ofbeldi sem oft fær þrifist innan veggja heimilisins orðið stöðugt ágengari. Hún hefur opnað augu okkar fyrir þeirri skelfilegu staðreynd að stundum stafar einstaklingum beinlínis ógn af friðhelgi einkalífsins. Nágrannar og skyldfólk veigrar sér oft við að skipta sér af því sem gerist innan veggja heimilis þó að grunur leiki á að ofbeldi sé þar framið. Jafnvel eru til mörg dæmi um það að lögreglan hiki við að hafa afskipti af heimilisofbeldi þrátt fyrir að fórnarlömb þess leiti hjálpar hennar. Við slíkar aðstæður snýst ákvæðið um friðhelgi einkalífsins upp í andhverfu sína. Í stað þess að verja hagsmuni allra nýtist það til þess að verja þá sem brotið hafa af sér, með því að brjóta gegn öðrum í eigin fjölskyldu. Bók Thelmu Ásdísardóttur, Myndin af pabba, sem út kom fyrir jólin 2007 minnir okkur kröftuglega á þetta. Við þurfum vonandi ekki aðra slíka sögu til að vakna til vitundar um þær skelfingar sem eiga sér því miður stað innan veggja sumra heimila, þar sem allt heimilsfólkið á með réttu að njóta öryggis og verndar. Við gerð nýrrar stjórnarskrár verðum við fyrst og síðast að hafa í huga hagsmuni þeirra sem veikast standa. Þegar ákvæðið um friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu verður endurskoðað verðum við í ljósi biturrar reynslu að huga sérstaklega að heill þeirra sem ekki búa við öryggi á sínu eigin heimili. Öryggi þeirra er um leið öryggi okkar allra. Samfélag er því aðeins öruggt og gott að allir sem í því lifa búi við öryggi og skjól jafnt innan sem utan veggja heimilisins. Þess vegna verður að ganga út frá einstaklingum sem grunneiningu en ekki heimilinu. Mannhelgi og jafnrétti eru mikilvæg grundvallargildi í því sambandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Halldór 27.12.2025 Halldór Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson Skoðun Skoðun Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Sjá meira
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar