Guðmundur: Þennan leik áttum við að vinna Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 19. janúar 2010 22:38 Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska landsliðsins í leiknum í kvöld. Mynd/Leena Manhart
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska landsliðsins, var að vonum einkar óánægður með jafnteflið sem Ísland gerði við Serbíu á EM í handbolta í kvöld.Serbar skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins en lokatölurnar voru 29-29. Snorri Steinn Guðjónsson lét svo verja frá sér víti þegar venjulegur leiktími var útrunninn.„Ég er rosalega svekktur. Varnarleikurinn í síðari hálfleik var mjög slakur og var alveg ótrúlegur munur á honum í fyrri hálfleik og svo þeim síðari. Alveg ótrúlegur munur."Hann sagði liðið hafa gert nákvæmlega það í fyrri hálfleik sem lagt var fyrir.„Við gengum í allar þeirra sóknaraðgerðir og við vissum nákvæmlega hvað við vorum að gera. Við vorum algerlega með þá. Þess vegna er þetta svona svekkjandi. Nú þurfum að skoða hvað gerist svo í síðari hálfleik."„Við misstum einbeitinguna og markvarslan datt líka niður. Við það datt ákveðið öryggi úr okkar leik. Við fengum alls átján mörk á okkur í síðari hálfleik og það er allt of mikið. En þrátt fyrir það vorum við fjórum mörkum yfir þegar fimm mínútur voru eftir og það á að duga til sigurs. Við áttum að vinna þennan leik en því miður gerðist það ekki."„Varnarleikurinn fór á það slæmt stig í síðari hálfleik að við eigum ekki að sætta okkur við slíka frammistöðu. Það var engu líkara að leikáætlunin sem við notuðum í fyrri hálfleik hefði bara ekki verið til staðar í þeim síðari."En Guðmundur sagði sína menn ekki dottna af baki. „Þetta þjappar okkur enn betur saman. Svona eru bara íþróttirnar. Nú þurfum við að bíta í skjaldarrendur og taka næsta leik."
Mest lesið Ræddu brotthvarf Davíðs: „Þetta er eins og köld vatnsgusa“ Íslenski boltinn Davíð Smári hissa: „Sökudólgur sjálfur með því að setja viðmiðið mjög hátt“ Íslenski boltinn „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Körfubolti Jón Þór ráðinn í björgunaraðgerðir hjá Vestra Íslenski boltinn Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 3-2 | Aftur mistókst Blikum að tryggja titilinn Íslenski boltinn Fengu nóg af skeytingarleysi og mismunun Íslenski boltinn Héldu vöku fyrir leikmönnum Liverpool Fótbolti Aftur tapar Liverpool Fótbolti Amorim að verða uppiskroppa með afsakanir Enski boltinn Uppgjör: Víkingur - Valur 3-0 | Sannfærandi heimasigur í rigningunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Sjá meira