Tær snilld - VG snúið í 180 gráður Jón Bjarni Jónsson skrifar 25. nóvember 2010 14:13 Á næstu 3 dögum gætu orðið merk tímamót í íslenskri pólitík, en þá mun byggingarverktakinn Spöng ehf, ná að snúa stórum hluta þingmanna Vinstri Grænna í 180°. Að sögn Gróu á Leiti, þá er talið að þessi snúningur muni hafa mjög jákvæð áhrif á rikisstjórnarsamstarfið og alla ákvörðunartöku þar. Að ekki sé talað um stjórnarandstöðuna, en að sögn, er hún hin kátasta með umskiptin, en reyndar einnig pínulítið svekkt yfir því að hafa ekki hugkvæmst sjálfri, þessi gjörningur. Þessi snúningur ætti einnig að vera kærkomin tilbreyting fyrir stjórnmálaskýrendur, sem hafa einungis getað fjallað um að þingmenn séu að færast til vinstri, hægri eða til miðju, en aldrei í hálfhring eins og nú verður raunin. Allavega verður áhugavert að fylgjast með afleiðingunum. Búið er að vera töluvert aðlögunarferli að þessum viðsnúningi Vinstri Grænna, reyndar með mismikilli hrifningu sumra þeirra. Felst sú aðlögun í því, að þingmenn VG voru fluttir með skrifstofur sínar úr "Skúlahúsi" sem stendur við Vonarstræti í Reykjavík, í gömlu Morgunblaðshöllina, (menn verða varla hægrisinnaðri), og voru það mjög þung spor fyrir þingmenn VG, að vera settir þar inn, nánast í betrunarvist. Eftir aðlögunarferlið stendur svo til að flytja þá aftur á sínar fyrri skrifstofur, í svonefndu Skúlahúsi, með þeirri breytingu þó, að í stað þess að geta gengið inn í húsið vinstra megin, verða þeir nú að ganga inn til hægri. Það verður nefnilega búið að flytja húsið í Kirkjustræti, og snúa því. Lekið hefur út að aðilar innan VG séu alls ekki sáttir við þennan snúníng og séu að leita logandi ljósi að stuðningi, til að hindra þennan gjörning. Bæði hefur sést til þeirra hjá forseta vorum og einnig á ýmsum skrifstofum innan stjórnkerfisins. Forsetinn var, að sögn Gróu, allur af vilja gerður, og sá jafnvel fyrir sér seinna meir að geta sett í sínar endurminningar "I..SAVE VG" En mesti stuðningurinn úr stjórnkerfinu kom, eins og vænta mátti, frá Barnaverndarstofu. Því eins og alþjóð veit þá hafa verið mjög sterk tengsl á milli hennar og VG. Bæði er að barnaverndarstofa hefur aldrei staðið uppi í hárinu á formanni VG,(enda lítið að halda þar í) og einnig mun Stjóri Barnaverndarstofu telja að málið falli undir sína stofnun, þar sem þingmenn VG hafi í gegnum tíðina passað vel upp á að varðveita barnið í sjálfum sér, og því sé réttlætanlegt að Barnaverndarstofa gæti þeirra hagsmuna. Það er jú ekkert um það í stjórnarskránni hvenær barndómi lýkur. En samkvæmt óáreiðanlegum heimildum, er það ekki svo að neinn illvilji sé að baki þeirri ákvörðun að snúa VG. Heldur er það gert með góðum hug, að færa skrifstofur þeirra til Kirkjustrætis frá Vonarstræti, nánast fylgir kærleiki þessum flutningi. Má því segja að Trú, Von og Kærleikur til handa VG, sé ástæða þess að þeim sé snúið, vonandi til betri vegar. Með von um meiri trú, meiri von og meiri kærleika, hjá okkur öllum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar