Það sem mestu máli skiptir Hjörvar Pétursson skrifar 25. nóvember 2010 14:25 Mig langar að vekja athygli á því sem mér finnst skipta allramestu máli við komandi stjórnlagaþing, númer eitt, tvö og þrjú: 1. Farðu og kjóstu á laugardaginn. Hverja þá sem þér líst best á. Það er mikilvægast af öllu. Stjórnlagaþing mun þurfa sterkt umboð frá þjóðinni til að standa að breytingum. 2. Í nýrri stjórnarskrá þarf að draga eitthvað af tönnum úr framkvæmdavaldinu. Styrkja sjálfstæði löggjafar- og dómsvalds. Efla áhrif forseta til að geta betur haft taumhald á forsætisráðherra og ríkisstjórn. Og yfirhöfuð skoða hverja þá leið sem gæti orðið til gagns við að draga úr því sem hefur verið ýmist verið kallað ráðherra- eða flokksræðið. 3. Aftur: Farðu og kjóstu! Það er ýmislegt sem hægt er að grípa til þannig að skapist heilbrigðara jafnvægi milli valdpólanna þriggja. Rætt hefur verið um að ráðherrar skuli ekki sitja á alþingi. Það hefur verið vakin athygli á að hægt er að draga úr frumkvæðisvaldi ráðherra til að setja lög og reglugerðir og setja í staðinn í hendur nefnda alþingis. Einnig eru leiðir til koma í veg fyrir að persónulegir og flokkspólitískir hagsmunir séu settir ofar hagsmunum lands og þjóðar, til dæmis gegnum kosningakerfið. Hvort kjördæmin eru sjö eða eitt, kosið eftir persónum eða listum er aukaatriði. Aðalatriðið er að nýtt kosningakerfi dragi sem mest úr líkum á klíkuskap og spillingu. Ég er hlynntur því að halda í forsetaembættið og á erfitt með að sjá hvernig hægt væri að leggja embættið niður öðruvísi en að styrkja með því tök flokkakerfisins á framkvæmdavaldinu. En það þarf að skrifa hlutverk forseta Íslands í stjórnskipuninni upp á nýtt, til dæmis væri hægt að herða á kröfum um kjörgengi til embættisins og undanskilja þar alþingismenn, ráðherra og dómara. Sníða svo embætti sem yrði pólitískt, en þó utan flokkapólitíkur. Ákvæði um málskotsrétt til þjóðaratkvæðis þyrfti að leysa betur en nú er. Til dæmis ætti frumvarpi sem forseti hafnar undirritunar skilyrðislaust að vísa til þjóðaratkvæðagreiðslu innan ákveðins tíma. Ferillinn ætti að vera nauðbundinn - ráðherrar eða alþingi gætu ekki einfaldlega dregið til baka frumvarp sem hefur verið synjað undirritunar. Dómstólakafli stjórnarskrár þyrfti að vera mun ítarlegri en þær þrjár greinar sem eru þar í dag. Og í hverju því tilviki þar sem alþingi kemur við sögu (t.d. við skipan fulltrúa í dómnefnd um hæfni umsækjenda, eða við skipan Dómsmálaráðherra í dómaraembætti) ætti að miða við aukinn meirihluta. Það ætti að auka völd alþingis gegn ráðherra og draga úr hættunni á flokkspólitískum áhrifum inn í dómskerfið. Raunar þykir mér að í sem flestum þeim atkvæðagreiðslum á alþingi sem hafa að gera með stjórnskipan ríkisins ætti að tíðkast aukinn meirihluti. Það ætti að ýta undir að þar verði tíðkuð meiri samræðustjórnmál og minni aðgerðapólitík. Enda sér það hver sem vill sjá er lítur yfir farinn veg að þegar klórað er undir yfirborðið á mörgum þeirra ummæla þar sem hvatt var til "aðgerðapólitíkur" (og þá oft talað í fyrirlitningartóni um "samræðupólitík") voru það gjarnan skrauthvörf fyrir spillingu, baktjaldamakk og vinagreiða. Enn í dag er hrópað hátt og jafnvel hærra en fyrr um að það vanti meiri aðgerðir í íslensk stjórnmál, mest af öllu. Það sé bara ekki um neitt annað að ræða. En þvert á móti: Það sem vantar mest af öllu í íslensk stjórnmál (og það langtum frekar en meiri aðgerðir) eru meiri samræður. Ef vel tekst til getur ný stjórnarskrá hjálpað til við það. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson skrifar Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar