Nýtt Ísland Birgir Loftsson skrifar 10. nóvember 2010 09:30 Það er viðeigandi að fara út í stjórnarskrárbreytingu eftir þá miklu kollsteypu sem íslenskt samfélag hefur orðið fyrir og raunar er það löngu orðið tímabært. Stjórnarskrá er samfélagssáttmáli um grunngildi samfélagsins og er hún heiti yfir allar þær reglur sem ráða stjórnskipun ríkisins. Rétt er hafa í huga að hún getur verið í formi eins ákveðins skjals eða verið óskrifuð. Þannig geta hefðir og venju haft stjórnskipuleg gildi og verið hluti af stjórnarskránni. Íslendingar vildu hins vegar og fengu ritaða stjórnarskrá árið 1874 en hún var kölluð ,,Stjórnarskrá um hin sérstaklegu málefni Íslands" og er að stofni til sú sama og núgildandi stjórnarskrá. Það er því ljóst að hún er löngu úreld; samin fyrir íslenskt samfélag á 19. öld þegar Íslendingar voru undir erlendri stjórn. Markmið mitt með framboði til stjórnlagaþings er að stuðla að gerð stjórnarskrár sem er alíslensk að uppruna og samin fyrir íslenskt nútímasamfélag. Það er hins vegar gott að skoða og taka upp það sem vel hefur verið gert í öðrum löndum. Þýska og svissneska stjórnarskrárnar eru dæmi um velheppnuð verk. Þær breytingar sem ég vil helst sjá er algjör aðskilnaður á hinu þríþætta valdi, þ.e.a.s. aðskilnað löggjafar- og framkvæmdarvalds. Það þýðir fækkun þingmanna og að ráðherrar fái ekki sæti á Alþingi. Einnig verður að gæta betur að sjálfstæði dómskerfisins en nú er gert. Skýra verður betur hvaða hlutverki forseti Íslands á gegna og setja á betri starfsreglur fyrir forsetaembættið. Hlúa verður sérstaklega að fullveldishugtakinu í stjórnarskránni, nú þegar Íslendingar eru að huga inngöngu í Evrópusambandið. Skrá verður í stjórnarskrána að fullveldi Íslands sé í höndum íslensku þjóðarinnar, ekki Alþingis, og hún ein geti gefi eftir fullveldi landsins og jafnframt tekið það til baka. Það sé gert með þjóðaratkvæði. Enda vil ég sjá víðtækari beitingu þjóðaratkvæðis en hingað til hefur verið gert. Hér er ég að tala um takmarkað þjóðaratkvæði, t.d. ætti ekki að vera hægt að hafa þjóðaratkvæðisgreiðslu um skattamál. En með flestum öðrum erfiðum deilumálum er þjóðinni fulltreystandi til að ráða fram úr án íhlutunar misvitra og sérhagsmunasinnaðra þingmanna. Auðlindir landsins eru mikið hitamál í dag og verður áfram um ókomna framtíð. Tryggja verður að það komi fram í stjórnarskránni að þjóðin eigi auðlindir landsins. Með öðrum orðum að auðlindir hafsins, orkan í jörðinni og vatnið séu í eigu þjóðarinnar. Ríkið, hið þríþætta vald getur hins vegar hlutast um og ráðstafað þessu auðlindum með umboði þjóðarinnar (með þjóðaratkvæði). Girða verður fyrir að ríkisvaldið geti með einfaldri lagasetningu afsalað auðlindirnar í hendur einstakra aðila nema sem skamman afnotarétt sem borga verður fyrir. Mörg önnur mál eru mér hugleikin sem ég tel að eigi að laga í stjórnarskránni en ég enda orð mín á þessum alkunnu sannindum; það sem kynslóðir hafa skapað og staðist hefur tímans tönn, ber að varðveita og þar af leiðandi á ekki að breyta öllu í stjórnarskránni, einungis breytinganna vegna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 06.09.2025 Halldór Fólk í sárum veldur tárum Árni Sigurðsson Skoðun Getur þjóð orðið of rík? – Ádeila frá Noregi sem getur átt við um Ísland Júlíus Valsson Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun Umfjöllun Kastljóss Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Akademískt frelsi og grátur í draumum Viðar Hreinsson Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir Skoðun Útgerðin skuldar okkur skýringar Guðmundur Helgi Þórarinsson Skoðun Sakborningur hjá saksóknara Páll Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Getur þjóð orðið of rík? – Ádeila frá Noregi sem getur átt við um Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Fólk í sárum veldur tárum Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson skrifar Skoðun Akademískt frelsi og grátur í draumum Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar - tékklisti fyrir stjórnvöld til að gera betur Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Fjöldi kynja – treystir þú þér í samtalið með velferð barna að leiðarljósi? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar Skoðun Ókeypis minnisblað fyrir Alþingi: Jafnrétti er ekki skoðun- en umræðan er það Sigríður Ásta Hauksdóttir skrifar Skoðun Segðu skilið við sektarkenndina Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius skrifar Skoðun Lög um vinnu og virknimiðstöðvar Atli Már Haraldsson skrifar Skoðun Áfram Breiðholt og Kjalarnes! Skúli Helgason skrifar Skoðun Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Vesturlönd mega ekki leyfa Pútín að skrifa leikreglurnar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Umfjöllun Kastljóss Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gulur september María Heimisdóttir skrifar Skoðun Kyn og vægi líkamans Gunnar Snorri Árnason skrifar Skoðun Sakborningur hjá saksóknara Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Reiði á tímum allsnægta Jökull Gíslason skrifar Skoðun 60.000 auðir fermetrar Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Kristinn átrúnaður á tímum þjóðarmorðs Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Tölur segja ekki alla söguna Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Skólinn er ekki verksmiðja Kristinn Jón Ólafsson,Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Enn úr sömu sveitinni Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Palestínsk börn eiga betra skilið Anna Lúðvíksdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stjórn Eflingar lýsir yfir samstöðu með palestínsku þjóðinni og fordæmir þjóðarmorð á Gaza Hópur stjórnarmanna í Eflingu skrifar Skoðun Þjóð gegn þjóðarmorði – stéttarfélög hvetja til þátttöku Hópur formanna stéttarfélaga skrifar Skoðun Umferðaröryggi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar er pabbi? Og aðrir stríðsglæpir Ísraels Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Meira að segja Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Það er viðeigandi að fara út í stjórnarskrárbreytingu eftir þá miklu kollsteypu sem íslenskt samfélag hefur orðið fyrir og raunar er það löngu orðið tímabært. Stjórnarskrá er samfélagssáttmáli um grunngildi samfélagsins og er hún heiti yfir allar þær reglur sem ráða stjórnskipun ríkisins. Rétt er hafa í huga að hún getur verið í formi eins ákveðins skjals eða verið óskrifuð. Þannig geta hefðir og venju haft stjórnskipuleg gildi og verið hluti af stjórnarskránni. Íslendingar vildu hins vegar og fengu ritaða stjórnarskrá árið 1874 en hún var kölluð ,,Stjórnarskrá um hin sérstaklegu málefni Íslands" og er að stofni til sú sama og núgildandi stjórnarskrá. Það er því ljóst að hún er löngu úreld; samin fyrir íslenskt samfélag á 19. öld þegar Íslendingar voru undir erlendri stjórn. Markmið mitt með framboði til stjórnlagaþings er að stuðla að gerð stjórnarskrár sem er alíslensk að uppruna og samin fyrir íslenskt nútímasamfélag. Það er hins vegar gott að skoða og taka upp það sem vel hefur verið gert í öðrum löndum. Þýska og svissneska stjórnarskrárnar eru dæmi um velheppnuð verk. Þær breytingar sem ég vil helst sjá er algjör aðskilnaður á hinu þríþætta valdi, þ.e.a.s. aðskilnað löggjafar- og framkvæmdarvalds. Það þýðir fækkun þingmanna og að ráðherrar fái ekki sæti á Alþingi. Einnig verður að gæta betur að sjálfstæði dómskerfisins en nú er gert. Skýra verður betur hvaða hlutverki forseti Íslands á gegna og setja á betri starfsreglur fyrir forsetaembættið. Hlúa verður sérstaklega að fullveldishugtakinu í stjórnarskránni, nú þegar Íslendingar eru að huga inngöngu í Evrópusambandið. Skrá verður í stjórnarskrána að fullveldi Íslands sé í höndum íslensku þjóðarinnar, ekki Alþingis, og hún ein geti gefi eftir fullveldi landsins og jafnframt tekið það til baka. Það sé gert með þjóðaratkvæði. Enda vil ég sjá víðtækari beitingu þjóðaratkvæðis en hingað til hefur verið gert. Hér er ég að tala um takmarkað þjóðaratkvæði, t.d. ætti ekki að vera hægt að hafa þjóðaratkvæðisgreiðslu um skattamál. En með flestum öðrum erfiðum deilumálum er þjóðinni fulltreystandi til að ráða fram úr án íhlutunar misvitra og sérhagsmunasinnaðra þingmanna. Auðlindir landsins eru mikið hitamál í dag og verður áfram um ókomna framtíð. Tryggja verður að það komi fram í stjórnarskránni að þjóðin eigi auðlindir landsins. Með öðrum orðum að auðlindir hafsins, orkan í jörðinni og vatnið séu í eigu þjóðarinnar. Ríkið, hið þríþætta vald getur hins vegar hlutast um og ráðstafað þessu auðlindum með umboði þjóðarinnar (með þjóðaratkvæði). Girða verður fyrir að ríkisvaldið geti með einfaldri lagasetningu afsalað auðlindirnar í hendur einstakra aðila nema sem skamman afnotarétt sem borga verður fyrir. Mörg önnur mál eru mér hugleikin sem ég tel að eigi að laga í stjórnarskránni en ég enda orð mín á þessum alkunnu sannindum; það sem kynslóðir hafa skapað og staðist hefur tímans tönn, ber að varðveita og þar af leiðandi á ekki að breyta öllu í stjórnarskránni, einungis breytinganna vegna.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun
Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun
Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir Skoðun
Skoðun Getur þjóð orðið of rík? – Ádeila frá Noregi sem getur átt við um Ísland Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson skrifar
Skoðun Skóli án aðgreiningar - tékklisti fyrir stjórnvöld til að gera betur Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar
Skoðun Fjöldi kynja – treystir þú þér í samtalið með velferð barna að leiðarljósi? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar
Skoðun Ókeypis minnisblað fyrir Alþingi: Jafnrétti er ekki skoðun- en umræðan er það Sigríður Ásta Hauksdóttir skrifar
Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius skrifar
Skoðun Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Stjórn Eflingar lýsir yfir samstöðu með palestínsku þjóðinni og fordæmir þjóðarmorð á Gaza Hópur stjórnarmanna í Eflingu skrifar
Skoðun Þjóð gegn þjóðarmorði – stéttarfélög hvetja til þátttöku Hópur formanna stéttarfélaga skrifar
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun
Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun
Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir Skoðun