Lögleg en gamaldags vinnubrögð Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 23. janúar 2010 14:24 Óskar Bjarni aðstoðarþjálfari reynir hér að ræða málin við dómarana eftir leikinn við Austurríki. Mynd/DIENER/Leena Manhart
Forráðamenn Handknattleikssambands Íslands funduðu með starfsmönnum á leik Íslands og Austurríkis á EM í handbolta nú í hádeginu. Einar Þorvarðarson, framkvæmdarstjóri HSÍ, og Knútur Hauksson formaður óskuðu eftir fundinum sem fór fram í dag. „Við sendum inn greinargerð og óskuðum eftir því að hitta viðkomandi aðila og fara yfir leikinn," sagði Einar en Austurríki skoraði þrjú síðustu mörk leiksins á lokamínútunni og tryggði sér þar með jafntefli. Dómarar leiksins, sem voru frá Rúmeníu, stöðvuðu leiktímann eftir að Austurríkis skoruðu 35. og 36. mörk sín í leiknum sem lauk með 37-37 jafntefli. „Við fórum yfir þessa lokamínútu leiksins og útskýrðum okkar mál og túlkun á leikreglunum." „Eftir að reglum var breytt um „hraða miðju" hætta dómarar að stöðva tímann eftir að mark er skorað. Ef þeim finnst hitt liðið vera að tefja hafa þeir leyfi til að beita hendinni og dæma svo leiktöf eftir fimm sekúndur." „Dómararnir hafa vald til að stöðva tímann. Þetta er hins vegar ekki gert lengur og þarna tóku þeir upp mjög gamaldags vinnubrögð," sagði Einar. „Þeir báru fyrir sig að þetta hafi þeim verið kennt en við bentum á að þetta væru dómarar sem hefðu dæmt á Ólympíuleikum og fleiri stórmótum." „Starfsmenn leiksins viðurkenndu að dómarar gerðu þarna annað en þeim hafði verið kennt." Þeir komu einnig þeim skilaboðum á framfæri að frammistaða dómaranna verði að hafa sínar afleiðingar. „Ef lið standa sig illa á mótinu fara þau heim. Það hlýtur að gilda það sama um dómarana og einfalt mál að senda þá heim ef þeir standa sig ekki vel." Hins vegar er óvitað hvað verður og hvort rúmenska dómaraparið fái aftur að dæma á Evrópumeistaramótinu í Austurríki.
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira