Bíó og sjónvarp

Stendur á hátindi ferilsins

Freyr Bjarnason skrifar
Sandra Bullock með Óskarsverðlaunin sem hún fékk fyrir hlutverk sitt í The Blind Side.
Sandra Bullock með Óskarsverðlaunin sem hún fékk fyrir hlutverk sitt í The Blind Side. nordicphotos/getty
Sandra Bullock stendur á hátindi ferils síns eftir að hafa fengið Óskarinn fyrir hlutverk sitt í The Blind Side. Hún hefur ávallt notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum þrátt fyrir að gagnrýnendur hafi ekki ávallt verið sáttir við frammistöðu hennar.

Sandra Bullock vakti fyrst athygli í hasarmynd Sylvester Stallone, Demolition Man. Hún sló rækilega í gegn í ofurtryllinum Speed á móti Keanu Reeves og lék í nokkrum vinsælum myndum í framhaldinu. Framhaldsmyndinni Speed 2 gekk aftur á móti hryllilega og næstu myndum Bullock gekk fremur illa í miðasölunni. Smám saman hefur hún þó fikrað sig upp á við.

Tvær tekjuhæstu myndir hennar til þessa komu út í Bandaríkjunum í fyrra, The Proposal og The Blind Side, og segja má að hún sé loksins komin á toppinn á ferli sínum. 44 ára að aldri afsannar hún þá kenningu að eftir því sem konur eldast í Hollywood gangi þeim verr.

Samkvæmt fyrirtækinu The Numbers, sem tekur saman aðsóknartölur vestanhafs, hafa myndir hennar náð inn 1,7 milljörðum dollara í miðasölunni og alls 3,1 milljarði um heim allan. Til marks um miklar vinsældir Bullock í heimalandinu hefur hún fimm sinnum hlotið People's Choice-verðlaunin sem vinsælasta leikkonan í Bandaríkjunum.

Það hvernig hún tók á móti Razzies-skammarverðlaununum með glöðu geði fyrir floppið All About Steve degi áður en hún fékk Óskarinn var örugglega ekki til að draga úr vinsældum hennar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×