Yngvi: Þvílíkur mannskapur sem KR er með Valur Smári Heimisson skrifar 2. júní 2010 23:41 Yngvi Magnús Borgþórsson. Mynd/Daníel
Eyjamaðurinn Yngvi Magnús Borgþórsson segir að það hafi verið svekkjandi að tapa fyrir KR í kvöld og falla þar með úr leik í VISA-bikarkeppni karla. „Já, það er auðvitað alveg ömurlegt. Við hefðum viljað fara alla leið í bikarnum en þetta var leikur á milli tveggja sterkra liða. Hvorugt lið var að fá mikið af færum en þeir nýttu sín einfaldlega betur en við." „Varnarleikurinn hjá okkur var samt sem áður góður. Gallinn var kannski sá að það slitnaði aðeins á milli miðju og sóknar og oft vantaði okkur þessa síðustu sendingu sem þarf til að klára færin en það gekk ekki hjá okkur í dag." Þetta var fyrsti sigur KR á tímabilinu en liðið er enn án sigurs í deildinni. „Við vissum auðvitað að þeir myndu hrökkva í gang einhvern tímann. Þetta er þvílíkur mannskapur sem liðið er með og sennilega er hann sá besti í deildinni. Því miður fyrir okkur fundu þeir sig vel í kvöld." „Annars fannst mér við byrja vel í þessu móti og vorum ágætir í dag þó svo að sigurinn hafi ekki dottið okkar megin. Við komum bara ákveðnir til baka á sunnudaginn gegn Grindavík og þýðir ekkert að gráta þetta í dag. Áhorfendurnir voru frábærir í dag og ég vona að þeir haldi áfram að styðja við bakið á okkur," sagði Yngvi.
Íslenski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira