Andstæðingur dagsins á EM: Serbía Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 19. janúar 2010 13:30 Momir Ilic.
Vísir fjallar um andstæðinga Íslands í riðlakeppni Evrópumeistaramótsins í handbolta. Í dag mætir Ísland liði Serbíu í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Leikurinn hefst klukkan 19.15 í kvöld. Hér fyrir neðan gefur að líta yfirlit yfir árangur liðsins á stórmótum í handbolta undanfarinn áratug. Þá er einnig rætt við Guðmund Guðmundsson landsliðsþjálfara um hans álit á andstæðingi dagsins, lykilmanni þess, þjálfara og hvað beri sérstaklega að varast. „Serbar hafa verið að spila nokkuð fjölbreytilegan varnarleik," segir Guðmundur. „Annars hafa þeir verið að spila framliggjandi vörn, svokallaða 3-2-1 vörn sem hefur alltaf verið þeirra aðall. Þeir geta einnig spilað 6-0 vörn og líka beitt öðru varnarafbrigði sem heitir 4-2. Þeir geta því verið nokkuð óútreiknanlegir hvað varnarleikinn varðar." „En það ber einnig að hafa í huga að þeir eru mjög líkamlega sterkir og almennt með mjög öflugt lið. Það er enginn vafi á því enda hafa úrslitin í æfingaleikjum liðsins fyrir mótið sýnt það."Árangur undanfarinna tíu ára: EM 2008: Komust ekki í lokakeppnina. OL 2008: Komust ekki á leikana. HM 2009: 8. sætiÁrangur sameinaðs liðs Serbíu og Svartfjallalands (keppti einnig undir merkjum Júgóslavíu): EM 2000: Komst ekki í lokakeppnina. ÓL 2000: 4. sæti HM 2001: 3. sæti EM 2002: 10. sæti HM 2003: 8. sæti EM 2004: 8. sæti ÓL 2004: Komust ekki á leikana. HM 2005: 5. sæti EM 2006: 9. sæti HM 2007: Komst ekki í lokakeppnina.Innbyrðisviðureignir Íslands og Serbíu á stórmótum síðasta áratug: HM 2001: Ísland - Júgóslavía 27-31 (tap) - í 16-liða úrslitum EM 2002: Ísland - Júgóslavía 34-26 (sigur) - í milliriðlakeppni HM 2003: Ísland - Júgóslavía 32-27 (sigur) - leikur um 7. sæti EM 2006: Ísland - Serbía & Svartfjallaland 36-31 (sigur) - riðlakeppni Þjálfari: Sead Hasanefendic (einnig þjálfari Gummersbach í Þýskalandi). Guðmundur um Hasanefendic: „Hann náði mjög góðum árangri þegar hann var þjálfari Túnis þegar HM fór fram þar í landi árið 2005. Hann er mjög reyndur og prýðisgóður þjálfari. Hann er líka nýr þjálfari hjá liðinu og það mun gera leikmenn enn grimmari ef eitthvað er." Lykilmaður: Momir Ilic, Kiel „Ilic er þeirra stærsta stjarna en þeir eru með nokkuð jafnt lið. Þeir eru til að mynda með mjög sterkan miðjumann sem heitir Andelkovic og einnig afar góðan línumann. En Ilic er þeirra þekktasti leikmaður - hann er frábær skytta og ekki síður góður varnarmaður líka," segir Guðmundur.Hvað ber að varast: „Það er erfitt að nefna eitthvað sérstakt sem ber að varast. Það er góður heildarbragur á liðinu og við þurfum að spila vel bæði í vörn og sókn til að eiga möguleika gegn þeim. Það verður erfitt að takast á við línumanninn þeirra enda eru þeir duglegir að gefa inn á hann í sóknarleik sínum. Við þurfum að vera spila mjög sterkan varnarleik enda spila þeir fjölbreyttari varnarleik en oft áður," segir Guðmundur.
Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira