Rúrik Gíslason og félagar hans í danska liðinu OB töpuðu í kvöld fyrir Midtjylland í fyrri leik liðanna í undanúrslitum dönsku bikarkeppninnar, 2-0. Rúrik lék allan leikinn.
Midtjylland komst yfir í lok fyrri hálfleiks og skoraði svo síðara markið undir lok leiksins. Liðin mætast öðru sinni í næstu viku og þá á heimavelli OB.
Nordsjælland og Vejle mætast í hinni undanúrslitarimmunni en sjálfur úrslitaleikurinn fer fram á Parken þann 13. maí.