Þorbjörn Jensson: Eins og þeir væru að spila í fjórða flokki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2010 19:00 Austurríkismenn fagna sigri á móti Íslendingum. Mynd/Leena Manhart
Þorbjörn Jensson, fyrrverandi landsliðsþjálfari íslenska handboltalandsliðsins, var í viðtali við Hans Steinar Bjarnason í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem hann fór yfir jafnteflisleikinn á móti Austurríki. „Strákarnir hafa ekki nógu mikið sjálfstraust núna og við vorum að gera alveg ótrúleg byrjendamistök í þessum leik. Okkur eru líka mjög mislagðar hendur í varnarleiknum og hann er bara í molum ef ég verð að segja alveg eins og er," segir Þorbjörn. „Það fór margt úrskeiðis í leiknum á móti Austurríki en síðan er það alveg sér kapítuli fyrir sig hvernig leikurinn endar því þá voru menn eins og þeir væru að spila í fjórða flokki og nýbyrjaðir að henda bolta á milli sín," segir Þorbjörn. Hann hrósar mikið Degi Sigurðssyni, landsliðsþjálfara Austurríkismanna. „Þetta var mjög taktískur sigur hjá Degi. Hann spilaði alveg inn á íslensku vörnina og nýtti sér þessa veikleika sem eru í henni. Hann nýtti sér að miðjumennirnir eru látnir sækja svona langt fram því það er ákveðin leikaðferð gagnvart því og hún gekk alveg fullkomlega upp hjá Degi," segir Þorbjörn. „Dagur þekkir þetta lið okkar alveg út og inn. Hann tekur Ólaf úr umferð frá byrjun og gerir Ólaf svolítið værukæran," sagði Þorbjörn sem fannst það einnig mjög snjallt hjá Degi að hætta síðan að taka Ólaf úr umferð í seinni hálfleik. Þorbjörn var líka ekki sáttur með frammistöðu dómarana í leiknum. „Ég hefði verið alveg foxillur út í dómarana. Það er svolítið skítalykt af því þegar dómarar frá Rúmeníu eru að dæma þar sem heimaliðið er að leika. Það er vitað mál að þessir kappar ganga oft meira fyrir peningum en heiðarleika," sagði Þorbjörn að lokum.
Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Oliver til FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira