Dagur: Áttum stigið skilið Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 22. janúar 2010 19:30 Dagur Sigurðsson, var mikinn þjálfarsigur á móti Íslendingum. Mynd/Leena Manhart
Dagur Sigurðsson sagði á blaðamannafundi austurríska landsliðsins í handbolta í gær að liðið hefði átt skilið að fá eitt stig úr leiknum við Ísland í gær.„Við unnum fyrir stiginu. Við börðumst allan leikinn og fengum það sem við áttum skilið þó svo að heppnin hafi auðvitað verið einnig á okkar bandi," sagði Dagur á fundinum í dag.Hann var spurður um tilfinningar sínar eftir leikinn og að hafa náð stigi af löndum sínum.„Ég var nokkuð rólegur bæði fyrir leikinn og á meðan honum stóð. En þetta var nokkuð furðulegt eftir leikinn. Þá áttaði ég mig á því að við afrekuðum eitthvað afar sérstakt," sagði Dagur.„Þetta er frábær árangur fyrir austurríska liðið en nú er mikilvægast að snúa okkur að næsta leik sem verður gegn Serbíu."„Ég sagði leikmönnum í morgun að það yrði erfitt eftir svona upplifun að halda einbeitingu. Nú rignir yfir þá hamingjuóskum frá fjölskyldu og vinum. Þetta er eitthvað sem ég þekki vel."„En við verðum þó að halda áfram að bæta okkur ef við ætlum að vinna næsta leik. Serbar eru undir mikilli pressu og verða að vinna þennan leik. Þetta er því erfitt."Sigurvegari leiksins kemst áfram í milliriðlakeppnina en Austurríki dugir jafntefli til að komast áfram. Verði niðurstaðan jafntefli þurfa Serbar að treysta á hagstæð úrslit úr leik Íslands og Danmerkur síðar um kvöldið.Dagur segir árangur landsliðsins hafa staðfest þær væntingar sem hann gerði til liðsins þegar hann tók við þjálfun þess.„Ég hafði alltaf trú á liðinu - annars hefði ég ekki tekið að mér starfið. Nú hef ég fengið staðfestingu minni trú vegna þess að liðið hefur verið að spila vel. Það er ekki hægt að ná svona árangri á baráttunni einni heldur verður að vera ákveðin geta til staðar einnig."Dagur var svo spurður út í lokamínútu leiksins í gær en þá skoraði austurríska liðið þrjú mörk á 50 sekúndum.„Það var bara ekki hægt að undirbúa sig fyrir svona lagað. Þetta er ekki eitthvað sem hægt er að taka fyrir á æfingum. Annað hvort er maður tilbúinn í svona átök eða ekki. Þess vegna er svo mikilvægt að menn haldi einbeitingunni í lagi og geri það áfram. Þetta er allt spurning um hugarfar."
Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira