Hertz kaupir 50 nýjar Skodabifreiðar af HEKLU 18. mars 2010 15:09
Undirritaður hefur verið samningur milli HEKLU og Bílaleigunnar Hertz um kaup á 50 nýjum Skoda Octavia og Skoda Yeti bifreiðum sem verða afhentar á vormánuðum en bílaleigan stefnir að því að vera búin að endurnýja allan bílaflota sinn haustið 2011. Von er á enn frekari samningum um tugi bíla til viðbótar. Í tilkynningu segir að samkomulagið undirstrikar gott samstarf HEKLU og Hertz bílaleigunnar sem undanfarin ár hefur verið með Skoda Octavia í bílaflota sínum vegna óska viðskiptavina um stærri en jafnframt hagkvæmari bíla. „Skoda Octavia er einstaklega hagkvæmur bíll í rekstri og sparneytinn og hefur verið mjög vinsæll meðal okkar viðskiptavin. Jafnframt var ákveðið að festa kaup á Skoda Yeti, nýja fjórhjóladrifna jepplinginum, sem er sparneytinn eins og aðrar Skodabifreiðar og hentar okkur því ákaflega vel," segir Hendrik Berndsen, stjórnarformaður Hertz, en hann festi nýlega kaup á Bílaleigu Hertz ásamt þeim Sigurði Berndsen, fjármálastjóra Hertz, Sigfúsi B. Sigfússyni, framkvæmdastjóra Hertz, og Sigfúsi R. Sigfússyni. „Það er okkur hjá HEKLU mikið ánægjuefni að skrifa undir þennan samning og leggja þeim félögum þannig lið við uppbygginguna á bílaflota Hertz. Með hækkandi eldsneytisverði skiptir æ meira máli að bílar séu sparneytnir og þar koma Skodabifreiðarnar sterkar inn, eins og hefur margsannast í sparaksturskeppnum," segir Knútur G. Hauksson, forstjóri HEKLU. „Það er mjög ánægjulegt að eiga þessi viðskipti við HEKLU og við eigum eftir að ganga frá fleiri bílakaupasamningum," sagði Sigfús B. Sigfússon, framkvæmdastjóri HERTZ, sem undirritaði samninginn ásamt Knúti G. Haukssyni forstjóra HEKLU. „Við ætlum að vera búnir að endurnýja allan bílaflota okkar næsta haust og bæði Skoda Octavia og Yeti-jepplingurinn falla einstaklega vel að þeim áformum, enda öruggir, traustir og hagkvæmir bílar."
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira