Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað Þórarinn Eyfjörð skrifar 17. nóvember 2010 06:00 Á vegum Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Ríkisendurskoðunar og Stofnunar stjórnsýslufræða var haldinn morgunverðarfundur þann 10. nóvember síðastliðinn. Yfirskrift fundarins var „Starfsmannamál ríkisins – er breytinga þörf?“. Fyrsta erindi fundarins kom frá Ingunni Ólafsdóttur sérfræðingi á stjórnsýslusviði Ríkisendurskoðunar og fjallaði hún um könnun á viðhorfi forstöðumanna til starfsmannalaga. Í könnun Ríkisendurskoðunar koma fram mjög alvarlegar vísbendingar um takmarkaða þekkingu og getu forstöðumanna ríkisstofnana í mannauðsmálum. Styrkur þeirra virðist sannarlega ekki liggja í mannauðsstjórnun heldur á fagsviði viðkomandi forstöðumanns. Hvernig er þá ástandið í starfsmannamálum? Helmingur forstöðumanna metur ekki frammistöðu starfsmanna með formlegum hætti, flestir þeirra telja sig þó umkomna til að sinna starfsmannamálum með fullnægjandi hætti og rúmlega þriðjungur þeirra telur sig geta bætt þjónustu sinnar stofnunar með því að reka eldri starfsmenn og ráða nýja! Hér er verulegra umbóta þörf. Ríkisendurskoðun hefur í gegn um tíðina oft komið fram með ábendingar og leiðsögn sem virðast bæði vera þarfar og gagnlegar. Það var því nokkuð sérstakt að hlýða á málflutning fulltrúa stofnunarinnar á umræddum fundi því ekki var lagt út af augljósustu og alvarlegustu niðurstöðu könnunarinnar; að helmingur stjórnenda innan ríkiskerfisins hefur ekki sérþekkingu á sviði mannauðsstjórnunar. Af þessu má að minnsta kosti draga eina ályktun. Það er innbyggt í starfsmannahald ríkisins að upp muni koma vandamál hvað varðar stjórnun starfsmanna og árangur þeirra deilda og sviða þar sem stjórnendur hafa enga eða litla þekkingu á mannauðsstjórnun. Í ljósi þessarar stöðu þá liggur það beint við að sá stjórnandi sem illa veldur hlutverki sínu í stjórnun starfsmanna, er líklegur til að kenna öðrum um slaka frammistöðu sinnar einingar. „Bara ef ég gæti nú rekið þig, já og líka þig, þá myndi allt verða í himnalagi“. Því miður þá getur viðhorf af þessu tagi orðið að meinsemd. Við höfum dæmin allt í kring um okkur; agaleysi barna er skólanum að kenna, vont hjónaband er makanum að kenna og slæleg frammistaða í rekstrinum er starfsmönnum að kenna. Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað. Á umræddri ráðstefnu átti Gunnar Björnsson skrifstofustjóri starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins lokaerindið. Ef hægt er að tala um kjarna málsins, eða vandans, þá kom hann fram í máli Gunnars. Hann lagði út af því hvert væri hlutverk og ábyrgð stjórnenda innan ríkiskerfisins. Erindi hans bar yfirskriftina „Betri mannauðsstjórnun – öflugri stjórnsýsla“. Í máli Gunnars kom meðal annars fram; 60%-75% af lélegri frammistöðu í rekstri má skrifa á stjórnun. Góðir stjórnendur skila meiri framleiðni og starfsánægju en slakir stjórnendur. Helsti einstaki áhrifavaldur fyrir tryggð og frammistöðu starfsfólks er leiðtogahæfni stjórnenda. Helsta ástæða uppsagna starfsfólks er óásættanleg samskipti við næsta stjórnanda. Þar höfum við það. Fjölmiðlar hafa gert sér mat úr þessum morgunfundi. Það hefur vakið athygli að þeir hafa látið hjá líða að fjalla sérstaklega um þennan kjarna málsins. Það er að sínu leyti leitt hvað heimskulegar fullyrðingar um ófullnægjandi frammistöðu ríkisstarfsmanna vekja krampakennd viðbrögð hjá ákveðnum hópi manna. Það er einnig leitt að Ríkisendurskoðun skuli ekki í annars góðum verkum sínum, benda á meinsemdina í stjórnun ríkisstofnana og leggja til skynsamlegar úrbætur. Staðreyndin er sú að almennir ríkisstarfsmenn sinna verkum sínum og ábyrgðarsviðum af stakri prýði og fyrir lægri laun að jafnaði en aðrir njóta. Vitaskuld koma upp vandamál varðandi starfsmannahald í öllum skipulagseiningum. Gunnar Björnsson hefur bent á hið augljósa; að efla beri þekkingu og getu stjórnenda stofnana ríkisins til að stýra starfsfólki sínu með faglegum hætti. Þetta eru góðar og gagnlegar ábendingar. Um þetta eru fræðin afdráttarlaus; góð stjórnun skilar góðum árangri – slök stjórnun skilar slökum árangri. Til þess að auka árangur í rekstri ríkisstofnana er því lykilatriði að tryggja að stjórnendur hafi forsendur til að axla þá ábyrgð sem í stjórnun starfsmanna felst. Meðal annars þar er að finna lykilinn að góðum árangri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun