Viðskipti innlent

Skilanefnd skilar ríkissjóði 400 milljóna skatttekjum

Rekstur skilanefndar Kaupþings hefur skilað rúmum 400 milljónum króna í skatttekjur til ríkisins á fyrstu sex mánuðum ársins.

Skilanefnd Kaupþings átti fund með kröfuhöfum bankans í London í gær þar sem þetta kom m.a. fram. Á fundinum greindi skilanefndin frá stöðu þrotabúsins, en verðmæti eigna Kaupþings banka jókst að raunvirði um 120 milljarða króna á fyrri helmingi þessa árs.

Tekjur Kaupþings vegna þóknana nema um 800 milljónum króna á fyrri hluta ársins. Rekstrarkostnaður þrotabúsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 3,7 milljörðum króna, eða um 0,3% af virði heildareigna.

Skilanefnd Kaupþings hefur lagt mikla áherslu á vinnu við endurheimtur vegna lána og viðskipta til félaga sem hafa engan undirliggjandi rekstur, að því er fram kom í tilkynningu frá skilanefndinni í tengslum við birtingu nýrra fjárhagsupplýsinga.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×