Sverrir sagnfræðingur datt í heimildaleysi á rass sinn Kristrún Heimisdóttir skrifar 15. desember 2010 06:00 Sverrir Jakobsson leggur til mála sem póst-módernískur sagnfræðingur og sósíalisti á breiðsíðum Fréttablaðsins. Í grein sem birtist í þessu blaði í gær "Íslensk stjórnsýsla og fangaflugið" fjallar hann fyrst um lélegar heimildir úr bandaríska sendiráðinu, notar síðan þær sömu heimildir ef þær geðjast honum sem rök í pólítík og fjallar loks um hræðilega atburði sem höfðu ævarandi sár áhrif á fjölskyldur bæði hér á landi og í fjarlægri heimsálfu án þess að virða nýrri atburði því tengda viðlits. Er sagnfræði undirlægja stjórnmálabaráttu Sverrir? Upplýst er af skjölum Wikileaks að 2 starfsmenn utanríkisþjónustunnar, sem báðir voru þekktir af starfi í stjórnmálum fyrir Framsóknarflokkinn, gerðu lítið úr fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins um rannsókn á fangaflugi í júní 2007 í einkasamtali við bandarískan diplómat. Hvorugur þessara manna starfaði að málinu né hafði nokkra þekkingu á því frá fyrstu hendi. Þann 23. júní 2007 tilkynnti utanríkisráðuneytið um sérstaka skoðun á meintu fangaflugi í kjölfar útkomu seinni skýrslu Martys til þings Evrópuráðsins í Strasbourg. Tilefnið var að sú sem þetta ritar hafði við lestur skýrslunnar á útkomudegi séð Íslands getið í 3. fylgiskjali sem lendingarstaðar í flutningum Þjóðverjans El-Masri sem var alsaklausum rænt af CIA og fluttur í fangabúðir í Afganistan. Utanríkisráðherra ákvað tvennt: Rannsókn byggða á gagnagrunni Evrópuráðsins, upplýsingum frá Amnesty International og öllu sem fannst í fjölmiðlum um lendingar hér á landi frá september 2001 til júní 2007. Í öðru lagi í samstarfi við tollayfirvöld, flugmálastjórnir, lögreglu ofl. var tilkynnt um inngöngu og leit í öllum flugvélum. Á það reyndi síðan í nóvember þegar Sjónvarpið flutti fyrstu frétt um fangaflug á Reykjavíkurflugvelli. Í ljós kom að leitað hafði verið eins og vera bar og vélin flutti enga fanga. Aðferðafræði Íslands í þessu máli fylgdi tilmælum Amnesty og Evrópuráðsins vandlega og ytri skilaboð Íslands voru skýr, að landið tæki mannréttindi og varnir gegn pyntingum alvarlega og myndi ekki líða flug með fanga sem væri brot á alþjóðlegum mannréttindalögum. 21 Söndag fréttaþáttur dansks sjónvarpsins kom hingað sérstaklega í febrúar 2008 til að fjalla um þessar aðgerðir sem fyrirmynd fyrir eigin ríkisstjórn. Skýrslan sýndi að vélar með flugnúmer úr gagnrunnunum höfðu ítrekað lent hér á landi í fortíðnni en fangaflug verður ekki staðfest með óyggjandi hætti fyrr en Bandaríkjamenn eru reiðubúnir til að samstarfs um að upplýsa það eða einhverjum tekst að leka óyggjandi heimild þar um. Ríkisstjórn Íslands var hins vegar sannarlega aðili að hörmulegum atburði í Kjúklingastræti í Kabúl 2004 sem Sverrir víkur að. Árið 2008 ákvað utanríkisráðherra að fela tveimur fv. hæstaréttardómurum að vera ytri rannsakendur atvika og atburðarásar sem þarna var og fara yfir viðbrögð íslenskra stjórnvalda vegna þeirra og hvort gera mætti betur. Fjölskyldur áttu um sárt að binda, málið var opið sár og skuggi þessi gein yfir starfi íslensku friðargæslunnar. Hæstaréttardómararnir fyrrverandi ræddu við alla hlutaðeigandi sem fengu þarna margir hverjir í fyrsta skipti raunverulega áheyrn. Niðurstöður fólu í sér nokkur ámæli fyrir stjórnvöld en einnig stuðning við einstaklinga sem leita vildu réttar síns og loks þá pólitísku ákvörðun að íslenskir friðargæslar skyldu framvegis ekki bera herbúninga til marks um stöðu innan herskipulags. Þjálfun Íslendinga til að starfa innan slíks skipulags væri ekki næg og fölsk ásýnd gæfi falskt öryggi. Skýrsla um meint fangaflug og skýrsla hæstarréttardómarana um Kjúklingastræti voru báðar afhentar fjölmiðlum og hafa fengið ítarlega umfjöllun t.d. í Kastljósi. Grein Sverris Jakobssonar bar það með sér að hann hefði aldrei lesið þær þó það sé auðsótt mál og sennilega var hann búinn að gleyma þeim báðum. Áburður hans um yfirhylmingar er þannig innistæðulaus með öllu. Þarna datt Sverrir sagnfræðingur í heimildaleysi á rass sinn. Sverrir er kunnur hernaðarandstæðingur. Flokkur hans hefur verið í ríkisstjórn í bráðum 2 ár. Á þeim tíma hefur natovæðing íslensku lögreglunnar hafist gegn eindregnum mótmælum Landssambands lögreglumanna, ríkislögreglustjóra verið afhent þjóðaröryggismál svonefnd með einu handtaki og lofthelgisgæsla með ratsjám fyrirsjáanlega einkavædd. Sverrir er kunnur áhugamaður um alþjóðamál en flokkur hans hefur enga utanríkisstefnu. Afhverju gerir hann engar kröfur til eigin valdaflokks? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun