Eurostat mældi 5,9% verðbólgu hérlendis í ágúst 15. september 2010 10:39
Verðbólgan hér á landi var 5,9% í ágúst samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Evrópusambandsins (Eurostat) birti nú í morgun. Lækkar því verðbólgan um 0,3 prósentustig milli mánaða en hún var 6,2% hér á landi í júlí samkvæmt vísitölunni.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á þennan mælikvarða hefur verðbólgan hjaðnað umtalsvert síðasta árið en í ágúst í fyrra mældist hún 16,0%.Meginástæða lækkunarinnar er að áhrif gengislækkunar krónunnar á verðbólgu sem varð í aðdraganda og samhliða hruni bankakerfisins hér á landi á árinu 2008 eru nú nær horfin og tekin eru við áhrif styrkingar krónunnar frá upphafi árs.Í samanburði við önnur ríki Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var verðbólgan næstmest hér á landi í ágúst. Þetta er annar mánuðurinn í röð sem Ísland trónir ekki á toppnum á þessum lista en eins og kunnugt er þá hafði verðbólgan mælst mest hér á landi allt frá ágúst 2008.Í ágúst síðastliðnum mældist verðbólgan mest í Rúmeníu en þar var hún 7,6%. Það land sem kemur á eftir Íslandi á listanum er Grikkland en þar var verðbólgan 5,6% og næst á eftir kemur Ungverjaland með 3,6% verðbólgu. Verðbólgan minnkar lítillega milli júlí og ágúst innan ríkja EES, eða úr 2,1% í 2,0%.Aðeins tvö ríki upplifðu ástand verðhjöðnunar í ágúst og er það annars vegar Írland þar sem samræmd vísitala neysluverðs hefur lækkað um 1,2% yfir síðustu tólf mánuði og hins vegar Lettland en þar nemur lækkunin 0,4%. Ekki er við öðru að búast en að munurinn á Íslandi og öðrum EES-löndum haldi áfram að fara minnkandi næsta kastið, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Viðskipti erlent Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Viðskipti innlent Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Viðskipti innlent Tollar á ál og stál hækka Viðskipti erlent Íslenskir kvenstjórnendur: Bjartsýnar en með áhyggjur af stríði Atvinnulíf Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Viðskipti innlent Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Fleiri fréttir Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Sjá meira