Karólína stigi til hliðar Arnþór Sigurðsson skrifar 23. desember 2010 06:00 Það var fróðleg lesning í Fréttablaðinu í gær þar sem formenn félaga VG í Kópavogi og Reykjavík stökkva fram á ritvöllinn og vanda ekki forystu VG kveðjurnar. Sérstaklega er áhugavert að sjá undir hvaða titli Karólína skrifar, þ.e. sem formaður VG í Kópavogi. Karólína var kosin til þess á aðalfundi félagsins í janúar er leið, en hefur lítinn tíma gefið sér til að sinna því starfi. Því má segja að formaðurinn sé landlaus hvað varðar tengsl við félaga sína. Það er enn undarlegra að sjá hana skrifa um lýðræði og opna umræðu á opinberum vettvangi. Hennar störf í Kópavogi bera þess ekki vitni að hún sé mikið fyrir lýðræðið eða opna umræðu. Karólína hefur hvorki boðað til fundar í stjórn VG í Kópavogi né mætt á boðaða fundi innan félagsins í hálft ár. Hvorki á stjórnarfundi, félagsfundi eða fundi bæjarmálaráðs VG í Kópavogi. Sem betur fer hafa almennir félagar ekki látið fjarveru formannsins trufla starfið, það er kröftugra en nokkru sinni fyrr undir stjórn annarra félagsmanna. Það er því varla eðlilegt að hún telji sig tala í umboði félagsmanna. Í minni sveit var það sagt að það sé ljótt að villa á sér heimildir eða hefja sig upp í nafni annarra. Í raun virkaði þessi pistill hennar í Fréttablaðinu í gær á mig þannig að hér væri Garðar Hólm sjálfur mættur ljóslifandi. Hvað sem Karólínu finnst um þremenningana eða störf forystu VG yfir höfuð er hennar mál og er afar eðlilegt að hún hafi sínar skoðanir en það er verulega óeðlilegt að koma þeim á framfæri á röngum forsendum eins og hún hefur gert. Eðlilegast væri að Karólína stigi til hliðar sem formaður félagsins í Kópavogi svo að grasrótarstarfið hjá okkur gæti lifað og dafnað með eðlilegum hætti. Hennar störf hafa það sem af er árinu verið afskaplega lítil í okkar félagi og hefur það í raun staðið félaginu fyrir þrifum og er henni ekki til sóma. Það er því viðeigandi að vitna í hennar orð og beina þeim til hennar. Karólína á að mínu mati að hugsa sinn gang. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir skrifar Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Minna fólk – aðrar þarfir Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland skrifar Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson skrifar Sjá meira
Það var fróðleg lesning í Fréttablaðinu í gær þar sem formenn félaga VG í Kópavogi og Reykjavík stökkva fram á ritvöllinn og vanda ekki forystu VG kveðjurnar. Sérstaklega er áhugavert að sjá undir hvaða titli Karólína skrifar, þ.e. sem formaður VG í Kópavogi. Karólína var kosin til þess á aðalfundi félagsins í janúar er leið, en hefur lítinn tíma gefið sér til að sinna því starfi. Því má segja að formaðurinn sé landlaus hvað varðar tengsl við félaga sína. Það er enn undarlegra að sjá hana skrifa um lýðræði og opna umræðu á opinberum vettvangi. Hennar störf í Kópavogi bera þess ekki vitni að hún sé mikið fyrir lýðræðið eða opna umræðu. Karólína hefur hvorki boðað til fundar í stjórn VG í Kópavogi né mætt á boðaða fundi innan félagsins í hálft ár. Hvorki á stjórnarfundi, félagsfundi eða fundi bæjarmálaráðs VG í Kópavogi. Sem betur fer hafa almennir félagar ekki látið fjarveru formannsins trufla starfið, það er kröftugra en nokkru sinni fyrr undir stjórn annarra félagsmanna. Það er því varla eðlilegt að hún telji sig tala í umboði félagsmanna. Í minni sveit var það sagt að það sé ljótt að villa á sér heimildir eða hefja sig upp í nafni annarra. Í raun virkaði þessi pistill hennar í Fréttablaðinu í gær á mig þannig að hér væri Garðar Hólm sjálfur mættur ljóslifandi. Hvað sem Karólínu finnst um þremenningana eða störf forystu VG yfir höfuð er hennar mál og er afar eðlilegt að hún hafi sínar skoðanir en það er verulega óeðlilegt að koma þeim á framfæri á röngum forsendum eins og hún hefur gert. Eðlilegast væri að Karólína stigi til hliðar sem formaður félagsins í Kópavogi svo að grasrótarstarfið hjá okkur gæti lifað og dafnað með eðlilegum hætti. Hennar störf hafa það sem af er árinu verið afskaplega lítil í okkar félagi og hefur það í raun staðið félaginu fyrir þrifum og er henni ekki til sóma. Það er því viðeigandi að vitna í hennar orð og beina þeim til hennar. Karólína á að mínu mati að hugsa sinn gang.
Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar