Samningur undirritaður sem skapar 1.300 ársverk 13. október 2010 13:25
Í dag undirritaði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, og Rannveig Rist, forstjóri fyrir hönd Alcan á Íslandi hf., samning sem tengist áformum fyrirtækisins um stækkun og endurbyggingu álversins í Straumsvík . Samtals er um 86 milljarða króna fjárfestingu og um 1300 ársverk á framkvæmdatímanum að ræða. Framleiðsluaukningin í Straumsvík og breytingar vegna nýrra afurða álversins er stærsta einstaka fjárfestingin í atvinnuuppbyggingu frá falli fjármálakerfisins. Henni tengist líka stór fjárfesting Landsvirkjunar við Búðarhálsvirkjun. Í tilkynningu segir að sú fjárfesting sem búið er að tilkynna um vegna framleiðsluaukningar álversins í Straumsvík og nýrra og verðmætari afurða, með breytingum á framleiðslulínunni, nemur nærri 60 milljörðum króna og kallar á 620 ársverk á framkvæmdatímanum. Áætla má að framleiðsla og útflutningur muni aukast um tæplega 40 þúsund tonn auk þess sem afurðir álversins verða verðmætari. Til að mæta orkuþörfinni fyrir þetta verkefni er Landsvirkjun að hefja framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun. Áætlanir gera ráð fyrir að heildarfjárfesting vegna Búðarhálsvirkjunar muni nema um 26 milljörðum króna og að 600-700 ársverk skapist á byggingartíma. Samtals er því um 86 milljarða króna fjárfestingu og um 1300 ársverk á framkvæmdatímanum að ræða. Með nýjum raforkusamningi sem undirritaður var 15. júní sl., milli Alcan og Landsvirkjunar, var annars vegar endursamið um verð á allri núverandi orkusölu til álversins og hins vegar samið um afhendingu á viðbótar orku (75 MW) vegna áætlaðrar framleiðsluaukningar álversins. Hinn nýi raforkusamningur kemur alfarið í stað eldri raforkusamnings milli sömu aðila en sá síðarnefndi er fylgiskjal með aðalsamningnum frá 1966. Með þeim viðaukasamningi við aðalsamninginn sem undirritaður var í dag eru gerðar nauðsynlegar breytingar á aðalsamningnum, þannig að unnt sé að líta á aðalsamninginn frá 1966 og hinn nýja raforkusamning sem tvo sjálfstæða og ótengda samninga. Í framhaldi af undirritun hins áttunda viðaukasamnings verður hann lagður fyrir Alþingi til að veita honum lagagildi, eins og gert var á sínum tíma við aðalsamninginn frá 1966 og þá sjö viðauka sem gerðir hafa verið við hann.
Mest lesið Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Sjálfskaparvíti Venesúela: Sósíalíska draumaríkið sem kollvarpaðist í martröð Viðskipti erlent Ein og hálf milljón í sekt vegna leyfislausrar Airbnb útleigu Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Óvissa með umboð lækkar skuld Costco um fleiri milljónir Viðskipti innlent Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Viðskipti innlent Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Sjá meira