Hvers vegna við þurfum að breyta stjórnarskránni Alfreð Hafsteinsson skrifar 23. nóvember 2010 14:10 Stjórnskipulagið sem við höfum búið við á undanförnum áratugum er um margt meingallað. Virðing fyrir stjórnvöldum er mjög lítil og það er í raun óhugsandi að þannig geti það verið. Við verðum sem þjóð að geta verið sæmilega sátt við stjórnvöld í landinu og geta haft það á tilfinningunni að allir forystumenn þjóðarinnar, þingmenn og ráðherrar séu að vinna þjóðinni gagn þó áherslurnar séu misjafnar. Almenningur er búinn að fá yfir sig nóg af karpi og upphrópunum niðri á alþingi. Sem svo á endanum bíður eftir því að frumvörp um nánast öll mál komi úr ráðuneytunum og alþingi virkar svo sem afgreiðslustofnun. Því miður þá hafa stjórnmálamenn á Íslandi sýnt það að þeir eiga mjög erfitt með að vinna saman þvert á flokka eða kosningabandalög. Jafnvel í stórum málum undanfarna áratugi sem virkilega hafa skipt alla þjóðina máli þá hafa slík mál verið keyrð í gegnum þingið á litlum meirihluta, hvað þá að það kæmi til greina að spyrja þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Fjármálahrunið og eftirmálar þess hafa í raun kallað fram og sýnt svo ekki verður um villst veikleika stjórnkerfisins. Skýrt hefur komið fram hve ráðherraræðið er óeðlilega mikið. Ég tel að til þess að gera alþingi virkt afl þar sem fólk ræðir saman og kemst svo að bestu niðurstöðu fyrir þjóðina sem um leið mundi auka virðingu alþingis, þyrfti að gera eftirfarandi breytingar: Það þyrfti að breyta kjördæmaskipaninni og gera landið að einu kjördæmi. Kosningakerfið yrði mjög einfalt og um leið yrði vægi atkvæða að baki hverjum þingmanni alveg jafnt. Auðvelt yrði að opna fyrir persónukjör í slíku kerfi. Við erum lítil þjóð í stóru landi og þrátt fyrir að stærsti hluti þjóðarinnar búi á suðvesturhluta landsins, þá eru tengslin við landsbyggðina mikil og sterkar taugar út í hin ýmsu byggðarlög hjá þorra fólks. Ég er þess vegna fullviss um að þetta hefði ekki neikvæð áhrif fyrir landsbyggðina. Kjörnir þingmenn hefðu alveg jafn sterkar taugar til „heimahaganna" hvort heldur sem þeir kæmu úr kjördæminu Ísland eða fleiri kjördæmum. Sagan sýnir reyndar að þeir þingmenn sem kjörnir eru fyrir hin mismunandi kjördæmi hafa margir hverjir búið árum og jafnvel áratugum saman á Reykjavíkursvæðinu en samt unnið að fullum heilindum fyrir „sín" byggðarlög. Einnig eru þingmenn í núverandi kerfi að bjóða sig fram í kjördæmum sem þeir hafa aldrei búið í eða starfað í. Fækka ætti þingmönnum t.d. niður í 51. Ef alþingismaður veldist í ráðherraembætti ætti að kalla inn varaþingmann fyrir hann. Ráðherrar mættu jafnt sem áður sitja á alþingi og koma að umræðum en ættu ekki að hafa atkvæðarétt. Forsetinn ætti ekki að hafa vald til að synja lögum staðfestingar. Þess í stað ætti minnihluti þingmanna að hafa það vald að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um einstök mál. Ég tel að þetta yrði til þess að í stórum málum sem skipta alla þjóðina miklu máli þá yrðu þingmenn að vinna betur saman heldur en nú er og ná breiðri samstöðu, sem þá væntanlega endurspeglaði vilja mikils meirihluta þjóðarinnar. Ákveðið hlutfall kosningabærra manna, tiltölulega hátt ætti að geta kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um hverskonar mál er lúta að auðlindum landsins og einnig að málum sem lúta að hverskonar fullveldisafsali til annarra þjóða eða þjóðabandalaga. Koma þarf skýrt fram í stjórnarskránni að auðlindir landsins séu sameign þjóðarinnar. Einnig þarf að skilgreina sérstaklega hvað telst til sameiginlegra auðlinda. Hvar eru skilin milli almanna eigna og eignaréttar einstaklingsins. Eiga t.d. landeigendur allan nýtingarétt á því sem kemur úr jörðu hjá þeim hvort heldur sem það er á 20m dýpi, 100m dýpi eða 3000m dýpi? Hvað þá með sjávarfang o.s.frv. Varðandi arð af auðlindunum tel ég að það verði að ákveða með lögum gjaldtöku til ríkisins, það sé erfitt að skilgreina það í stjórnarskrá þar sem auðlindir eru breytilegar frá einum tíma til annars og geta jafnvel horfið með öllu. Samofið við nýtingu auðlindanna er svo umgengni við umhverfið og umhverfisvernd sem ætti að skilgreina í stjórnarskrá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun