Guðjón Valur: Var dýrmætt að fá frídag Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Vín skrifar 28. janúar 2010 13:00 Guðjón Valur Sigurðsson skorar hér eitt marka sinna á EM Mynd/DIENER/Leena Manhart
Guðjón Valur Sigurðsson segir að það hafi verið breyting til hins betra að dreifa leikjaálaginu á Evrópumeistaramótinu í handbolta.Ísland hefur alltaf átt frídag á milli leikja sinna þar til í upphafi milliriðlakeppninnar í Vínarborg. Ísland mætti Króatíu á mánudaginn og svo Rússum strax á þriðjudaginn.Frídagurinn í gær var því kærkominn. „Jú, það var nauðsynlegt að fá frí og í raun er þetta mót búið að vera mikill lúxus miðað við hvernig þetta hefur áður verið," sagði Guðjón Valur Sigurðsson við Vísi í gær.„Á EM í Svíþjóð árið 2002 var spilað í þrjá daga í röð, svo kom frí og svo var aftur spilað þrjá daga í röð. Það er auðvitað allt of mikið."„En ég tel að fleiri frídagar hafa þýtt að gæði handboltans eru meiri, jafnvel þótt að leikirnir séu ekki jafn hraðir og í upphafi móts. Leikur okkar gegn Rússum er þó undanskilinn því."En Guðjón Valur segist ekki finna fyrir neinni þreytu á þessu stigi mótsins.„Ég hef aldrei viðurkennt þreytu í miðju móti og ætla ekki að byrja á því núna," sagði hann og brosti. „Enda er ég alls ekki þreyttur."„Það er líka mjög jákvætt hvað við erum í góðu standi. Eini maðurinn sem hefur þurft að glíma við meiðsli er Diddi [Ingimundur Ingimundarson] en aðrir eru að mestu leyti heilir."En hann segir að andlegi þátturinn skipti miklu máli - ekki bara sá líkamlegi.„Á meðan allt gengur vel og maður er í séns þá er miklu auðveldara að telja sér trú um að þú sért ekki þreyttur. Ef við tökum sem dæmi Rússana. Þeir eru úr leik í keppninni en eiga samt einn leik eftir. Þeir eru örugglega að morkna úr leiðindum og þreytu."Hann segir að það verði ekkert gefið eftir í leiknum gegn Noregi í dag enda sæti í undanúrslitum mótsins í húfi.„Það er ekkert annað sem kemur til greina eða væri ásættanlegt. Á meðan það er möguleiki á undanúrslitum duga engar afsakanir og við munum ekki fela okkur - heldur er engin ástæða til þess."„Við látum ekki brjóta okkur á bak aftur. Við erum fullir sjálfstrausts og trúum á það sem við erum að gera og að það sé hið rétta. Vonandi verður það áfram svo gegn Noregi."
Mest lesið Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Í beinni: Ísland - Noregur | Stelpurnar okkar spila upp á stoltið Fótbolti Síðasti séns á að vinna milljónir Fótbolti Valdi Ísland fram yfir Noreg: „Ég er meiri Íslendingur“ Fótbolti Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Handbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Fær ekki heimsmet sitt viðurkennt: „Þetta er kjánalegt“ Sport Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Enski boltinn Sex hafa ekkert spilað á EM Fótbolti Fleiri fréttir Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Enn á ný er Íslendingur á bak við sigur Magdeburg í Meistaradeildinni Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem aðeins Íslendingar hafa náð Sjá meira