Guðjón Valur: Ég fæ bara gæsahúð að tala um þetta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2010 16:00 Guðjón Valur Sigurðsson er oft í stuði í leikjum landsliðsins í Laugardalshöllinni. Mynd/Arnþór
Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson treystir á það eins og aðrir leikmenn liðsins að fá góða kveðju frá íslensku þjóðinni í síðasta heimaleik liðsins fyrir EM sem verður á móti Portúgal í Laugardalshöllinni klukkan 20.15 í kvöld. „Það sem hefur verið svo gaman undanfarin ár er að fólk er meðvitaðra um okkur og það kemur líka þegar það eru æfingaleikir," segir Guðjón Valur og bætir við: „Það er miklu meira farið að syngja þjóðsönginn og 17. júní leikirnir hafa ýtt undir þjóðarstoltið. Það er einstakt að spila með landsliðinu þegar þú ert með fulla stúku og fulla höll og allir eru að syngja saman. Ég fæ bara gæsahúð að tala um þetta," segir Guðjón Valur. Guðjón Valur hefur oft verið í stuði í leikjum íslenska landsliðsins í Laugardalshöllinni en hann hefur skorað fimm mörk eða fleira í síðustu níu landsleikjum sínum í Höllinni. „Það er alltaf gaman að koma heima og æfa á Íslandi. Hápunkturinn er síðan þegar við náum að spila landsleiki hérna. Það skemmtilegasta sem maður gerir er að vera í Höllinni og finna fyrir stuðningnum þar. Höllin okkar er ekki stór en það getur myndast mjög mikill hávaði þar þegar hún er full og fólkið er í góðu skapi," segir Guðjón Valur. Guðjón Valur hefur skorað 62 mörk í síðustu 9 landsleikjum sínum í Laugardalshöllinni sem gera 6,9 mörk að meðaltali í leik en það heyrist aldrei meira í íslenskum áhorfendum þegar Guðjón Valur skorað hraðaupphlaupsmörkin sín á leifturhraða.
Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Enski boltinn Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Fótbolti Mótherjarnir afsaka sig fyrir fram: „Hvort sem það er leikrit eða ekki“ Fótbolti Fleiri fréttir Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Tap setur Ísland í erfiða stöðu Stelpurnar unnu Noreg á EM og tryggðu sér sautjánda sætið Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Sjá meira