Tvíeggja persónukjör Eiríkur Bergmann skrifar 12. nóvember 2010 11:19 Til viðbótar við að kjósa forsætisráðherra beinni kosningu, virkja beint lýðræði með aukinni notkun þjóðaratkvæðagreiðslna, semja alhliða borgaralega réttindaskrá og lækka kosningaaldurinn í sextán myndi ég vilja skoða það að viðhafa persónukjör í einhverri mynd í þingkosningum. Margar útfærslur koma til greina í þeim efnum. En vandinn sem við er að etja er einkum sá að völd hafa smám saman en jafnt og þétt safnast að stjórnmálaflokkunum, sér í lagi að fjórflokknum sem öllu ræður í íslenskum stjórnmálum. Stjórnmálaflokkarnir ráða enn framboðslistum, hvort heldur er með handröðum innmúraðra á lista eða í mislokuðum prófkjörum en kjósandinn getur lítil áhrif haft á mönnun listans sem hann merkir við í kjörklefanum. Aðeins er hægt að beita útstrikun, semsé með neikvæðri aðgerð, en mikill fjöldi kjósenda þarf að gera sömu breytingu til að útstrikunin hafi einhver áhrif. Kannski væri öllu nær að kjósendur gætu haft áhrif á röðun frambjóðenda með persónukjöri í einhverri mynd, áhrifin birtast þá með jákvæðum hætti sem flestum er held ég betur að skapi. Persónukjör í kjörklefanum myndi líka brjóta upp það tangarhald sem stjórnmálaflokkarnir hafa á frambjóðendum sínum. Að vísu er útfærsla á slíku engan vegin einföld og viss hætta á að aukið lýðskrum fylgi persónukjöri. Vilmundur Gylfason og félagar í Bandalagi jafnaðarmanna sáu fyrir sér að kjósendur gætu jafnvel valið frambjóðendur þvert á framboðslista í kjörklefanum. En hér þarf semsé vanda mjög til verks. Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Sjá meira
Til viðbótar við að kjósa forsætisráðherra beinni kosningu, virkja beint lýðræði með aukinni notkun þjóðaratkvæðagreiðslna, semja alhliða borgaralega réttindaskrá og lækka kosningaaldurinn í sextán myndi ég vilja skoða það að viðhafa persónukjör í einhverri mynd í þingkosningum. Margar útfærslur koma til greina í þeim efnum. En vandinn sem við er að etja er einkum sá að völd hafa smám saman en jafnt og þétt safnast að stjórnmálaflokkunum, sér í lagi að fjórflokknum sem öllu ræður í íslenskum stjórnmálum. Stjórnmálaflokkarnir ráða enn framboðslistum, hvort heldur er með handröðum innmúraðra á lista eða í mislokuðum prófkjörum en kjósandinn getur lítil áhrif haft á mönnun listans sem hann merkir við í kjörklefanum. Aðeins er hægt að beita útstrikun, semsé með neikvæðri aðgerð, en mikill fjöldi kjósenda þarf að gera sömu breytingu til að útstrikunin hafi einhver áhrif. Kannski væri öllu nær að kjósendur gætu haft áhrif á röðun frambjóðenda með persónukjöri í einhverri mynd, áhrifin birtast þá með jákvæðum hætti sem flestum er held ég betur að skapi. Persónukjör í kjörklefanum myndi líka brjóta upp það tangarhald sem stjórnmálaflokkarnir hafa á frambjóðendum sínum. Að vísu er útfærsla á slíku engan vegin einföld og viss hætta á að aukið lýðskrum fylgi persónukjöri. Vilmundur Gylfason og félagar í Bandalagi jafnaðarmanna sáu fyrir sér að kjósendur gætu jafnvel valið frambjóðendur þvert á framboðslista í kjörklefanum. En hér þarf semsé vanda mjög til verks. Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar