Sendi starfandi seðlabankastjóra Póllands bréf með samúðarkveðjum 10. apríl 2010 17:07 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, sendi í dag bréf til Piotr Wiesioleks starfandi seðlabankastjóra Póllands með samúðarkveðjum vegna fráfalls Slawomirs Stanislaws Skrzypeks seðlabankastjóra Póllands í hinu hörmulega flugslysi í Rússlandi í dag. Í bréfinu kom fram að samvinna Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Póllands hefur aukist á undanförnum árum og persónuleg tengsl skapast meðal annars í stuttri heimsókn Slawomirs og konu hans til Íslands sumarið 2008. Þá hafi Már kynnst Slawomir bæði í starfi fyrir Alþjóðagreiðslubankann í Sviss og enn nánar eftir að hann tók við embætti seðlabankastjóra á Íslandi. Í lok bréfsins tók seðlabankastjóri fram að hann vonaðist til að hægt yrði að heiðra minningu Slawomirs með því að þróa áfram vinsamleg samskipti og samvinnu seðlabanka Íslands og Póllands.
Tengdar fréttir Fjöldi háttsettra embættismanna voru í flugvél forsetans Nú er talið að 96 manns hafi farist þegar flugvél Lech Kaczynski forseta Póllands fórst í vesturhluta Rússlands í morgun. En áður hafði verið talið að allt að 132 hefðu verið um borð í flugvélinni. Með forsetanum fórust María eiginkona hans og margir æðstu ráðamenn pólska hersins ásamt seðlabankastjóra landsins. 10. apríl 2010 14:57 Össur um forseta Póllands: Hlýja hans gagnvart Íslandi var ótvíræð „Þetta er ógurlega sorglegt og ég fyllist samúð með pólsku þjóðinni að missa forseta sinn með þessu hætti,“ segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, um Lech Kaczynski, forseta Póllands, sem fórst í flugslysi í vesturhluta Rússlands í morgun. Talið er að 96 manns hafi farist í slysinu, þar á meðal forsetafrúin, fjölmargir háttsettir embættismenn og æðstu ráðamenn pólska hersins. 10. apríl 2010 16:32 Minningarathöfn vegna flugslyssins Aðalræðismannsskrifstofa Póllands hér á landi stendur fyrir minningarathöfn í Landakotskirkju síðar í dag vegna flugslyssins í vesturhluta Rússlands í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og sendinefnd fórust. 10. apríl 2010 14:27 Forseti Póllands fórst í flugslysi Lech Kaczynski, forseti Póllands, og eiginkona hans fórust ásamt 130 öðrum þegar flugvél sem hann var í fórst í vesturhluta Rússlands klukkan sjö í morgun. Enginn þeirra sem um borð var lifði slysið af. Flugvélin var af gerðinni Tupolev 154, framleidd í Rússlandi og var á leið inn til lendingar þegar slysið varð. 10. apríl 2010 09:06 Forseti Íslands sendir Pólverjum samúðarkveðjur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í morgun Bronisław Komorowski, forseta pólska þingsins og starfandi forseta landsins, samúðarkveðjur Íslendinga til pólsku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss þar sem Lech Kaczyński forseti Póllands, Maria Kaczyński eiginkona hans og fjölmargir aðrir forystumenn landsins og nánir samverkamenn forsetans létu lífið. 10. apríl 2010 11:37 Jóhanna sendi samúðarkveðjur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi í dag forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, samúðarkveðju. Í bréfi til ráðherrans lýsir hún yfir dýpstu samúð ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og fylgdarlið létust. 10. apríl 2010 15:54 Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira
Fjöldi háttsettra embættismanna voru í flugvél forsetans Nú er talið að 96 manns hafi farist þegar flugvél Lech Kaczynski forseta Póllands fórst í vesturhluta Rússlands í morgun. En áður hafði verið talið að allt að 132 hefðu verið um borð í flugvélinni. Með forsetanum fórust María eiginkona hans og margir æðstu ráðamenn pólska hersins ásamt seðlabankastjóra landsins. 10. apríl 2010 14:57
Össur um forseta Póllands: Hlýja hans gagnvart Íslandi var ótvíræð „Þetta er ógurlega sorglegt og ég fyllist samúð með pólsku þjóðinni að missa forseta sinn með þessu hætti,“ segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, um Lech Kaczynski, forseta Póllands, sem fórst í flugslysi í vesturhluta Rússlands í morgun. Talið er að 96 manns hafi farist í slysinu, þar á meðal forsetafrúin, fjölmargir háttsettir embættismenn og æðstu ráðamenn pólska hersins. 10. apríl 2010 16:32
Minningarathöfn vegna flugslyssins Aðalræðismannsskrifstofa Póllands hér á landi stendur fyrir minningarathöfn í Landakotskirkju síðar í dag vegna flugslyssins í vesturhluta Rússlands í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og sendinefnd fórust. 10. apríl 2010 14:27
Forseti Póllands fórst í flugslysi Lech Kaczynski, forseti Póllands, og eiginkona hans fórust ásamt 130 öðrum þegar flugvél sem hann var í fórst í vesturhluta Rússlands klukkan sjö í morgun. Enginn þeirra sem um borð var lifði slysið af. Flugvélin var af gerðinni Tupolev 154, framleidd í Rússlandi og var á leið inn til lendingar þegar slysið varð. 10. apríl 2010 09:06
Forseti Íslands sendir Pólverjum samúðarkveðjur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í morgun Bronisław Komorowski, forseta pólska þingsins og starfandi forseta landsins, samúðarkveðjur Íslendinga til pólsku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss þar sem Lech Kaczyński forseti Póllands, Maria Kaczyński eiginkona hans og fjölmargir aðrir forystumenn landsins og nánir samverkamenn forsetans létu lífið. 10. apríl 2010 11:37
Jóhanna sendi samúðarkveðjur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi í dag forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, samúðarkveðju. Í bréfi til ráðherrans lýsir hún yfir dýpstu samúð ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og fylgdarlið létust. 10. apríl 2010 15:54