Hamar og Keflavík mætast í tíunda sinn í vetur - oddaleikur í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2010 15:30 Julia Demirer er með 23,8 stig að meðaltali og 71,2 prósent skotnýtingu í einvíginu á móti Keflavík. Mynd/Anton
Hamar og Keflavík mætast klukkan 19.15 í kvöld í Hveragerði í hreinum úrslitaleik um sæti í lokaúrslitum Iceland Express deildar kvenna í körfubolta. Hamar tryggði sér oddaleik á heimavelli með 91-48 sigri í Keflavík í síðasta leik en Keflavík hafði þá unnið tvo leiki í röð. Sigurvegari kvöldsins mætir KR í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Þetta verður tíundi leikur liðanna á þessu tímabili þannig að leikmenn ættu að vera farnir að þekkja vel inn á hvern annan. Keflavík hefur haft aðeins betur í leikjunum níu, unnið fimm leiki á móti fjórum en Hamarsliðið hefur þó skorað 62 fleiri stig í þessum leikjum. Hamar hefur aldrei komist í lokaúrslit um Íslandsmeistaratitilinn en Keflavík hefur verið þar fjórtán sinnum í sautján ára sögu úrslitakeppninnar eða í öllum lokaúrslitum nema 1997, 2002 og svo í fyrra þegar Haukar unnu KR. Það hafa farið fram tíu oddaleikir um sæti í lokaúrslitum og heimaliðið hefur unnið níu af þessum tíu leikjum. Keflavík er eina liðið sem hefur unnið á útivelli við þessar aðstæður þegar liðið vann 58-51 sigur á ÍS í oddaleik undanúrslitanna árið 1999. Fyrirliðar Keflavíkurliðsins í dag, Birna Valgarðsdóttir og Marín Rós Karlsdóttir voru báðar með í þeim leik sem og aðstoðarþjálfarinn Anna María Sveinsdóttir.Leikir Hamars og Keflavíkur í vetur:Deildin 14.10.2009 Hamar-Keflavík 82-62 25.11.2009 Keflavík-Hamar 72-53A-deildin 10.2.2010 Hamar-Keflavík 69-74 2.3.2010 Keflavík-Hamar 85-101Bikar 17.1.2010 Keflavík-Hamar 86-72Úrslitakeppni 13.3.2010 Hamar-Keflavík 97-77 16.3.2010 Keflavík-Hamar 77-70 19.3.2010 Hamar-Keflavík 101-103 (framlengt) 21.3.2010 Keflavík-Hamar 48-91Oddaleikir um sæti í lokaúrslitum í úrslitakeppni kvenna:1993: Keflavík 59-56 Grindavík1995: Breiðablik 55-52 KR1999: ÍS 51-58 Keflavík2002: KR 63-62 Keflavík2003: KR 74-54 Grindavík2004: Keflavík 66-62 Grindavík2005: Keflavík 79-73 ÍS2006: Haukar 91-77 ÍS2007: Haukar 81-59 ÍS2008: KR 83-69 Grindavík2010: Hamar (23. mars 2010) Keflavík
Dominos-deild kvenna Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira