Skoðun

Verum virk – Kjósum til stjórnlagaþings

Jón Bjarni Jónsson skrifar

Heil og sæl. Næstkomandi laugardag þ. 27 nóvember verður kosið til stjórnlagaþings.

Ég vil hvetja ykkur öll til að mæta á kjörstað og stuðla að góðri kosningaþáttöku, því í mínum huga er þetta einstakt tækifæri fyrir okkur, til að hafa áhrif á okkar þjóðfélag, án þess að vera bundin stjórnmálaflokki eða hagsmunasamtökum.

Góð kosningaþáttaka mun gefa störfum stjórnlagaþings meira vægi gagnvart Alþingi, þegar endurbætt stjórnarskrá verður lögð þar fram til samþykktar. Einnig mun það sýna stjórnvöldum að við látum það koma okkur við, hvernig stjórnskipun er háttað í landinu okkar. Okkur er ekki sama.

Það er ljóst að erfitt er að velja úr öllum þessum fjölda frambjóðenda, og nær ógjörningur er að kynna sér þá alla. Vil ég því hvetja ykkur til að vera dugleg við að benda hvort öðru á þá frambjóðendur sem þið treystið, og sem þið teljið vera verðuga fulltrúa okkar á þingið.

Ég er þess fullviss að okkur takist að velja 25 fulltrúa sem hafa það eitt að markmiði, að semja skýra stjórnarskrá sem tryggir okkur réttlát og heiðarleg stjórnvöld hverju sinni.

Stjórnarskrána þarf að orða á þann hátt að hún sé öllum skiljanleg. Í dag er það ekki einfalt verk að túlka hana, því bæði þarf að skoða ýmsar lagagreinar, dóma, og jafnvel fylgirit, til að vita hvað stjórnarskráin í raun stendur fyrir. Því tel ég að leggja þurfi mikla vinnu í endurbætur á stjórnarskránni og orða hana á skýran og skiljanlegan hátt.

Vonast ég til að orðalag og innihald stjórnarskrárinnar verði það skýrt og óumdeilt, eftir breytingar, að við getum áfram kosið yfir okkur misvitra þingmenn, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að þeir geti klúðrað okkar landi aftur.

Það er enginn vafi í mínum huga að endurbætt stjórnarskrá, muni tryggja betur okkar mannréttindi, eignarrétt auðlinda okkar og betri stjórnsýslu.

Það er sama hvaða starf við tökum að okkur, við eigum að sinna því af metnaði og virðingu, því starfið er alltaf sameiginlegir hagsmunir starfsmanns og vinnuveitanda. Hvorugur þrífst án hins.

Vonandi mun það sjónarmið endurspeglast í störfum stjórnlagaþings, að unnið verði að hagsmunum þjóðarinnar í heild.

Mætum á kjörstað






Skoðun

Sjá meira


×