Leikmenn bera mikla virðingu fyrir Degi Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 18. janúar 2010 15:00 Patrick Fölser.
Patrick Fölser, einn lykilmanna austurríska landsliðsins í handbolta, segir að Dagur Sigurðsson hafi verið mikill happafengur fyrir liðið. Dagur er landsliðsþjálfari Austurríkis sem á morgun keppir í sínum fyrsta leik á stórmóti í handbolta í langan tíma. Tilhlökkunin er því mikil. „Það er auðvitað afar sérstakt að við skulum nú loksins spila á okkar fyrsta stórmóti en við þurfum þó fyrst og fremst að einbeita okkur að leiknum,“ sagði Fölser í samtali við Vísi á blaðamannafundi austurríska landsliðsins í Linz í dag. Austurríki mætir Evrópumeisturum Dana á morgun. „Okkar möguleikar felast í raun í því að nýta okkur þau tækifæri sem okkur bjóðast í leiknum. Ef þeir eiga slæman dag verðum við að nýta okkur það,“ bætti hann við. Fölser segir að þó svo að Dagur sé ungur að árum beri leikmenn ótakmarkaða virðingu fyrir honum. „Hann er tildæmis aðeins fimm árum eldri en ég en það er enginn vafi á því að Dagur er okkar leiðtogi í hópnum. Okkur líður mjög vel undir hans stjórn og hann er duglegur að gefa sér tíma til að ræða við leikmenn í einrúmi. Það var mikill fengur fyrir okkur að hafa fengið hann.“ Hann taldi þó að það væri ekki mjög mikið að græða á því að vera með íslenskan þjálfara fyrir leikinn gegn Íslandi á fimmtudaginn. „Dagur þekkir auðvitað íslenska liðið út og inn en í dag eru þjálfarar afar duglegir að fylgjast með andstæðingum þínum. Það hefur því kannski ekki svo mikið að segja. En hann þekkir ef til vill til einhverra smáatriða sem hann getur svo miðlað til okkar. Fölser er línumaður og leikur ásamt Sturlu Ásgeirssyni í Düsseldorf í þýsku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Íslenski boltinn Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira