Logi Geirsson: Minna hlutverk en áður Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 18. janúar 2010 21:45 Logi Geirsson. Mynd/Anton
Logi Geirsson segist vera orðinn heill af meiðslum sínum og að hann geti beitt sér að fullu í leik Íslands og Serbíu í fyrstu umferð riðlakeppninnar á EM í handbolta á morgun.„Kroppurinn er klár og var þetta mín besta æfing hingað til á undirbúningstímabilnu," sagði Logi eftir æfingu íslenska landsliðsins í keppnishöllinni í Linz í dag.„Það eru sextán manns í hópnum og ég lít á mitt hlutverk að ég gæti verið góð viðbót þegar þess verður þörf. Ég geri mér líka grein fyrir því að mitt hlutverk verður minna nú en á síðustu mótum. Enda er liðið búið að spila án mín í tæpt ár."Hann á þó von á að koma sterkur inn þegar á hann verður kallað.„Ég er að koma upp úr erfiðum meiðslum og ætla einfaldlega að gera mitt allra besta. Ég geri bara það sem þarf til að hjálpa liðinu. Mér er falið ákveðið hlutverk og það kemur betur í ljós síðar hvað það verður," sagði hann sposkur á svip.Logi fór í aðgerð á öxl í mars síðastliðnum en hefur einnig verið að glíma við nárameiðsli að undanförnu. En hann hefur þó engar áhyggjur af sinni stöðu í landsliðinu.„Við erum með þrjá leikmenn í þessari stöðu og Aron þar að auki. Óli G [Ólafur Guðmundsson] stóð sig mjög vel í Frakklandi um helgina og ég er því ekki í neinum vafa um að vinstri skyttan, sama hver er í þeirri stöðu, muni standa sig vel á þessu móti."
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Íslenski boltinn Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira