Viðbrögð leikmanna: Þetta var ekkert eðlilega gaman Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 24. janúar 2010 16:00 Robert var magnaður í gær. Mynd/DIENER/Leena Manhart
Íslensku leikmennirnir voru eðlilega í kampakátir með sigurinn gegn Dönum á Evrópumeistaramótinu í handbolta í gær. Þeir ræddu nokkrir við Vísi eftir leikinn. „Þetta var ekkert eðlilega gaman," sagði Arnór Atlason en hann skoraði þrjú mörk í leiknum og var afar öflugur í varnarleiknum. „Vörnin var ekkert eðlilega góð og það verður að hrósa þjálfarateyminu því við vissum nákvæmlega hvað við þurftum að gera í öllum aðgerðum. Þar fyrir utan var Bjöggi frábær í markinu." „Við höfum nú sent skýr skilboð til hinna liðanna í mótinu en það má ekki gleyma því líka að við höfum einnig átt okkar slæmu stundir. Það hefur sýnt sig að ef við erum ekki á fullu allan tímann getum við bara gleymt þessu." Róbert Gunnarsson nýtti eins og ávallt færin sín í sókninni gríðarlega vel og var sífellt ógnandi. Hann skoraði fjögur mörk og fiskaði einnig tvö víti. „Loksins gekk það upp það sem við ætluðum okkur. I dag náðum við heilum leik þar sem við spiluðum góðan varnarleik og það var vörnin sem skóp þennan sigur." „Þessi hópur hefur gengið í gegnum svo margt, bæði mikla gleði og mikla sorg og við stöndum og föllum sem einn maður. Ég vona því að við höfum nú fundið línuna og munum nú halda okkur á teinunum." Það hefur oft borið meira á Ólafi Stefánssyni en í leiknum en hann átti mjög sterka innkomu í síðari hálfleik auk þess sem hann spilaði vel í vörninni, rétt eins og aðrir í liðinu. „Ég var ánægður með svörunina frá vörninni og markverði. Þeir sýndu mikinn karakter eftir að hafa legið undir pressu síðustu tvo sólarhringa. Þeir voru ósáttir við sinn leik en svöruðu fyrri sig. Það er það sem skilur að meðalmennskuna og að vera aðeins betri en það." Ásgeir Örn Hallgrímsson fékk meira að spreyta sig í leiknum en í fyrri leikjum á mótinu og stóð sig afar vel í vörninni þær mínútur sem hann lék. „Það var mikill léttir að finna að við getum spilað vel. Það virðist þó vera lítið á milli þess að við spilum ömurlega illa og svo virkilega vel. Þetta datt inn að þessu sinni og þurfum við að byggja á því." „En það sannaðist að fall er fararheill. Það er auðvitað miklu betra að hafa unnið Dani nú en að hafa unnið Serbíu og svo tapað þessum leik."
Mest lesið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Slátturvél tók á loft í Svíþjóð Sport „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti Fleiri fréttir Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Sjá meira