Lýðræðisleg þátttaka almennings Ágúst Hjörtur Ingþórsson skrifar 24. nóvember 2010 14:00 Stjórnlagaþingi er ætlað samkvæmt lögum um það að fjalla um átta tilgreind atriði og er lýðræðisleg þátttaka almennings eitt þeirra atriði. Í þessum pistli er fjallað um þrjú atriði sem mér finnst mikilvæg varðandi þátttöku almennings í ákvörðunum og með hvaða hætti má draga úr áhrifum þess sem stundum er kallað stjórnmálastéttin. Í fyrsta lagi þarf að setja skýrar reglur í stjórnarskrá um þjóðaratkvæðagreiðslur sem tiltekinn lágmarkasfjöldi íbúa eða þingmanna getur krafist. Jafnframt kann að vera heppilegt að tilgreina ákveðin mál sem þarf að bera undir þjóðina, svo sem umfangsmikla alþjóðlega samninga sem fela í sér framsal á löggjafar- eða framkvæmdavalds eða breytingar á grunnstofnunum samfélagsins. Ræða þarf á stjórnlagaþingi hvort setja eigi í stjórnarskrá ákvæði sem opna fyrir nýtískulegar og rafrænar kosningar - sér í lagi í þjóðaratkvæðagreiðslum, eða hvort slíkt eigi frekar heima í kosningalögum. Samhliða því að opna fyrir að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu, þarf að tryggja að þær endurspegli þjóðarvilja með því að tilgreina lágmarksþátttöku þannig að háværir eða valdamiklir minnihlutahópar geti síður misnotað þær. Hér þarf stjórnlagaþing að horfa til þeirra fyrirmynda sem best hafa reynst annarsstaðar. Í öðru lagi þarf að tryggja aukin áhrif almennings með breyttu kosningafyrirkomulagi þannig að vilji þeirra endurspeglist betur í niðurstöðum kosninga. Mikilvægur þáttur í því væri að innleiða persónukjör þvert á lista stjórnmálaflokka í ríkara mæli. Slík ákvæði eiga þó fremur heima í kosningalögum á hverjum tíma. Persónukjör á bæði við á vettvangi sveitarstjórnarmála - þar sem vandséð eru rökin fyrir því að hefðbundin flokkanálgun eigi alltaf við - og á vettvangi Alþingis. Verði stjórnarskránni breytt á þann veg að landið allt verði eitt kjördæmi og þingmenn allir fulltrúar þjóðarinnar, er enn meiri ástæða að viðhafa persónukjör. Möguleikar almennings til áhrifa ráðast einnig af þeim upplýsingum sem almenningur býr yfir. Kveða þarf á um meginreglur sem mæla fyrir um árvekni löggjafarvaldsins á hverjum tíma til að takmarka margvíslegan „populisma" og að menn geti í of ríku mæli „keypt" sér fylgi í kosningum. Í því skyni þarf stjórnlagaþing að ræða hvað grundvallarreglur er hægt að setja til að tryggja fjölmiðlafrelsi og upplýsta umræðu í tengslum við kosningar, hvort sem um er að ræða þjóðaratkvæðagreiðslur eða alþingiskosningar. Í þriðja lagi er hægt að draga úr áhrifum stjórnmálastéttarinnar með því að takmarka þann tíma sem menn geta verið fulltrúar almennings í sveitarstjórnum, á Alþingi og gengt starfi forseta Íslands. Að baki býr sú hugsun að þátttaka í stjórnmálum eigi ekki að vera starfsferill í sjálfu sér, heldur afmarkaður hluti af ævi þeirra einstaklinga sem eru tilbúnir til að nýta þekkingu sína og reynslu af öðrum sviðum í þágu stjórnmálanna. Vel mætti ímynda sér að breyta fyrirkomulagi á kjörtímabili á öllum stigum og hafa það fimm ár í stað fjögurra eins og nú er og takmarka þá þátttöku hvers og eins við tvö kjörtímabil á hverju stigi eða tíu ár. Verði kjörtímabil óbreytt væru eðlileg tímamörk þrjú tímabil eða tólf ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun