Svartir svanir Vilhjálmur Ari Arason skrifar 18. nóvember 2010 16:00 18. nóvember er Evrópudagur til áréttingar um rétta notkun sýklalyfja og áminningar um vaxandi sýklalyfjaónæmi. Mikill skilningur hefur áunnist í þýðingu sýklalyfjaónæmis tengt mikill sýklalyfjanotkun í þjóðfélaginu, ekki síst hér á landi þar sem ástandið er orðið grafalvarlegt. Sýklalyfin hafa verið notuð óspart á vesturlöndum og nú nálgumt við óðfluga þann tíma sem var fyrir tilkomu lyfjanna. Lyf sem voru talin kraftaverkalyf og bættu a.m.k. 10 árum við meðalaldur manna í hinum vestræna heimi þegar þau komu fyrst á markað fyrir um 70 árum síðan. Lyf sem voru talin öflugasta vopn lækna í baráttunni gegn alvarlegum sýkingum á borð við lungnabólgu þar sem dánartíðnin var upp undir 30%. Til að byrja með var vandamálið mest bundið við spítalasýkingar og sem dagurinn í ár er einkum tileinkaður að þessu sinni. Á seinni árum er vandamálið þó ekkert síður bundið við notkun sýklalyfja út í þjóðfélaginu sjálfu. Hvað ef við nú sæjum afleiðingarnar betur úti í sjálfri náttúrunni? Við höfum miklar áhyggjur á yfirgangi lúpínunnar á gróðurfar landsins á sumrin þegar allt er í blóma og hvað ef allir svanir á Íslandi væru svartir eins og sá sem heimsótti okkur hér um árið? En því miður er bakteríuflóran í okkur og á ekki eins sýnileg með berum augum, en hún er engu að síður til staðar. Tengsl sýklalyfjanotkunar og útbreiðslu sýklalyfjaónæmra stofna meðal barna má meðal annars sjá í rannsóknum sem gerðar hafa verið hér á landi á undanförnum árum. Alvarlegast er aukin útbreiðsla fjölónæmra sýkingarvalda eins og berklabakteríunnar þar sem þær sýkingar eru landlægar og svo lungnabólgubakteríunnar hér á landi, svokallaðs pneumókokks sem m.a. veldur flestum alvarlegum eyrnabólgusýkingum barna. Þarna sköpum við okkur algjöra sérstöðu meðal norrænna þjóða og mætti halda að vandamálið væri heilbrigðisyfirvöldum sem dulin ráðgáta. Á Íslandi endurspeglast ómarkviss sýklalyfjanotkun mest og best tengt algengustu meinum barnanna okkar, efri loftvegasýkingum, sem oftast eru vegna veirusýkinga og vægra fylgisýkinga þeim tengdum en þar eru eyrnabólgurnar algengastar. Upp undir helmingur allra koma barna til lækna er vegna eyrnabólgu og vandamála þeim tengdum. Meirihluti þeirra barna sem koma til læknis með bráða miðeyrnabólgu hafa fengið sýklalyf við þessum vanda þrátt fyrir að Alþjóðlegar klínískar leiðbeiningar ráðleggi annað og sem gera frekar ráð fyrir verkjastillingu, eftirfylgni og fræðslu enda læknast flestar eyrnabólgurnar af sjálfu sér. Afleiðingarnar er mikið meira sýklalyfjaónæmi algengustu sýkingarvaldanna og jafnvel meiri sýkingartilhneying hjá börnum en í nágranalöndunum. Leiða má því líkum að eyrnabólgubörnin á Íslandi sé að hluta heimatilbúið vandamál en hvergi í heiminum eru fleiri börn sem þurfa að fá hljóðhimnurör eða allt að þriðjungur. Mikið erfiðara er líka orðið að meðhöndla erfiðar og alvarlegar sýkingar sem pneumókokkarnir geta valdið. Upp undir 40% af pneumókokkastofnum er með ónæmi fyrir penicillíni og helstu varalyfjum svo að ráðleggja verður oft strax hæstu leyfilegu skammta af penicíllini ef meðhöndla þarf t.d. alvarlega eyrnabólgu hjá barni, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu þar sem ástandið er hvað verst. Vaxandi fjölda barna þarf engu að síður að leggjast inn á spítala til að fá sterkustu lyf sem völ er á í æð eða vöðva þar sem inntaka um munn dugar ekki. Staða sem margar nágranaþjóðir okkar gapa af undrun yfir. Landslagið eða réttara sagt flóran er þannig gjörbreytt frá því fyrir nokkrum áratugum síðan þegar flest sýklalyf virkuð vel. Vegna tíðra eyrnabólgu hjá börnum og sýklalyfjaónæmis pneumókokka sem jafnframt geta valdið alvarlegum sýkingum er talið brýnt að grípa nú til bólusetningar gegn helstu (algengustu) stofnunum. Hætt er við að aðrir sýklalyfjaónæmir stofnar komi í stað þeirra sem bólusett er gegn með tímanum ef ekki verður dregið verulega úr sýklalyfjanotkuninni. Við megum því ekki fara úr öskunni í eldinn og verðum á sama tíma og við byrjum að bólusetja börnin að minnka ómarkvissa sýklalyfjanotkun í þjóðfélaginu öllu. Mikið hefur vantað upp á góðan skilning á öllum þessum málum sl. áratugi hér á landi. Náttúrufræðistofnun hefur því miður ekki haft skoðun á málinu enda ekki á hennar könnu að fylgjast með flóru landans og barnanna okkar. Það verkefni heyrir undir Heilbrigðisráðuneytið sem ber ábyrgð á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar og sem hefur falið sóttvarnarlækni að fylgjast með þróun mála. Þó voru samdar klínískar leiðbeiningar Landlæknis um meðferð eyrnabólgu barna á síðasta ári og náið er fylgst með sýklalyfjaónæminu á Sýklafræðideild LSH. Það sorglega er að vitað hefur verið um vandann í tæpl. tvo áratugi og hvert hefur stefnt í þessum efnum. Sýklalyfjanotkunin er samt meiri en fyrir um áratug síðan þótt aðeins hafi dregið úr henni á allra síðustu árum hjá yngstu börnunum. Er það ekki síst foreldrum að þakka sem sýnt hafa vandamálinu aukinn skilning. Allt að þrefaldur munur á sýklalyfjanotkun eftir búsetu talar samt sínu máli og í fyrra var hún t.d. rúmlega þriðjungi meiri í Reykjavík en í höfuðborg norðurlands, Akureyri. Eitt af heilögustu markmiðum læknisfræðinnar er að gera aldrei meira ógagn en gagn. Spurningar vakna hvort við höfum verið heilbrigðissóðar og hvað við ætlum þá að gera í þeim efnum? Eða er veruleikinn það flókinn og ofvaxin skilningi okkar að við ráðum ekki við hann? Nei, við skulum horfa framm á veginn og til nærumhverfisins okkar og vona að svanurinn svarti hafi aðeins verið hvítur svanur í álögum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Kyn og vægi líkamans Gunnar Snorri Árnason Skoðun Bakslag í skoðanafrelsi? Kári Allansson Skoðun Skólinn er ekki verksmiðja Kristinn Jón Ólafsson,Halldóra Mogensen Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun 60.000 auðir fermetrar Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvar er pabbi? Og aðrir stríðsglæpir Ísraels Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Skoðun Umfjöllun Kastljóss Þorgrímur Sigmundsson Skoðun 76 dagar sem koma aldrei aftur Einar Guðnason Skoðun Kristinn átrúnaður á tímum þjóðarmorðs Bjarni Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson skrifar Skoðun Akademískt frelsi og grátur í draumum Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar - tékklisti fyrir stjórnvöld til að gera betur Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Fjöldi kynja – treystir þú þér í samtalið með velferð barna að leiðarljósi? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar Skoðun Ókeypis minnisblað fyrir Alþingi: Jafnrétti er ekki skoðun- en umræðan er það Sigríður Ásta Hauksdóttir skrifar Skoðun Segðu skilið við sektarkenndina Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius skrifar Skoðun Lög um vinnu og virknimiðstöðvar Atli Már Haraldsson skrifar Skoðun Áfram Breiðholt og Kjalarnes! Skúli Helgason skrifar Skoðun Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Vesturlönd mega ekki leyfa Pútín að skrifa leikreglurnar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Umfjöllun Kastljóss Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gulur september María Heimisdóttir skrifar Skoðun Kyn og vægi líkamans Gunnar Snorri Árnason skrifar Skoðun Sakborningur hjá saksóknara Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Reiði á tímum allsnægta Jökull Gíslason skrifar Skoðun 60.000 auðir fermetrar Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Kristinn átrúnaður á tímum þjóðarmorðs Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Tölur segja ekki alla söguna Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Skólinn er ekki verksmiðja Kristinn Jón Ólafsson,Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Enn úr sömu sveitinni Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Palestínsk börn eiga betra skilið Anna Lúðvíksdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stjórn Eflingar lýsir yfir samstöðu með palestínsku þjóðinni og fordæmir þjóðarmorð á Gaza Hópur stjórnarmanna í Eflingu skrifar Skoðun Þjóð gegn þjóðarmorði – stéttarfélög hvetja til þátttöku Hópur formanna stéttarfélaga skrifar Skoðun Umferðaröryggi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar er pabbi? Og aðrir stríðsglæpir Ísraels Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Meira að segja Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 76 dagar sem koma aldrei aftur Einar Guðnason skrifar Skoðun Er popúlismi kenning um siðferði? Einar Gísli Gunnarsson skrifar Sjá meira
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun
Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun
Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson skrifar
Skoðun Skóli án aðgreiningar - tékklisti fyrir stjórnvöld til að gera betur Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar
Skoðun Fjöldi kynja – treystir þú þér í samtalið með velferð barna að leiðarljósi? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar
Skoðun Ókeypis minnisblað fyrir Alþingi: Jafnrétti er ekki skoðun- en umræðan er það Sigríður Ásta Hauksdóttir skrifar
Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius skrifar
Skoðun Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Stjórn Eflingar lýsir yfir samstöðu með palestínsku þjóðinni og fordæmir þjóðarmorð á Gaza Hópur stjórnarmanna í Eflingu skrifar
Skoðun Þjóð gegn þjóðarmorði – stéttarfélög hvetja til þátttöku Hópur formanna stéttarfélaga skrifar
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun
Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun