Siggi Bjarna: Vinnum Serbana sannfærandi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 19. janúar 2010 15:45 Sigurður Bjarnason, EM-sérfræðingur Vísis.
Þeir Sigurður Bjarnason og Aron Kristjánsson verða EM-sérfræðingar Vísis næstu tvær vikurnar. Þeir eru báðir fyrrum landsliðsmenn og núverandi þjálfarar sem eiga það sameiginlegt að hafa sterka skoðun á hlutunum. Sigurður er afar bjartsýnn fyrir leikinn gegn Serbum í kvöld og óttast ekki Serbana eins og svo margir gera. „Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu og er alveg ótrúlega bjartsýnn. Ég trúi því að við tökum þetta sannfærandi. Spái 36-29 fyrir okkur. Við höfum tak á Serbunum og hefur oftast gengið vel með þessar Júgóslavíuþjóðir. Ég óttast í rauninni Serbana minnst af þeim liðum sem eru með okkur í riðli. Sumir segja að það sé verra að fá snemma og sé betra að fá þá síðar þegar þeir nenna þessu ekki. Á móti kemur að þeir gætu verið á skriði og því kolbrjálaðir. Það þarf því ekkert að vera betra," sagði Sigurður en hvað mun gera gæfumuninn fyrir Ísland í kvöld? „Þeir munu lenda í vandræðum með vörnina okkar og markvörsluna. Við klárum þá síðan með hraðaupphlaupum. Við erum oftast ekki sterkir gegn 3-2-1 vörn eins og Serbar munu eflaust spila. Þess vegna verður lykillinn að loka vörninni og keyra hraðaupphlaupin," sagði Sigurður en hann er sannfæður um að vörnin og markvarslan verði góð í mótinu. „Ég skil ekki þá sem hafa áhyggjur af þessum hlutum. Við erum búnir að vinna alla leiki nema Frakkana enda var það blekking svo þeir vanmeti okkur í úrslitaleiknum," sagði Sigurður léttur en hann væntir mikils af íslenska liðinu á EM. „Ég spái því að við förum í úrslit. Auðvitað þurfa þá allir lykilmenn að haldast heilir út mótið en ef það gerist þá förum við í úrslit."
Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira