Össur mistúlkar Lissabonfundinn Þórarinn Hjartarson skrifar 2. desember 2010 00:01 Össur Skarphéðinsson kallar NATO-fundinn í Lissabon „heimssögulegan". Í Fréttablaðsgrein 23. nóvember nefnir hann tvennt mikilvægast í „nýju grunnstefnunni": a) barátta við „hermdarverk sem í dag er mesta ógnun við stöðugleika og frið" og b) „gerbreytt skotflaugavarnarkerfi" til varnar Vesturlöndum og Rússum - sem nú féllust í faðma. Stóra verkefni NATO núna er stríðið í Afganistan (og Pakistan). Innrásarherinn telur 100.000 bandaríska hermenn og 50.000 frá öðrum NATO-ríkjum. Uppistaðan í síðarnefndu tölunni kemur frá 38 Evrópuríkjum. Innrásarherinn er nú þrefalt fjölmennari en hann var þegar Barack Obama tók við keflinu af Bush, og miklu skiptir stóraukin þátttaka Evrópulanda. Listi „viljugra þjóða" hefur í raun lengst mjög. Meginmálið varðandi Afganistan var að færa aftur allar dagsetningar um heimkvaðningu herja. Í stað verulegrar heimkvaðningar um mitt ár 2011 eru nú nefnd árslok 2014. Þá verður hernámið orðið 13 ára. Yfirmaður breska heraflans Sir David Richards sagði stuttu fyrir fundinn: „NATO verður að búa sig undir 30 til 40 ára hlutverk við að hjálpa afgönsku hersveitunum#…" (Daily Mail, 15. nóv). Í grein í Fréttablaðinu 20. nóvember skrifar Obama að NATO þurfi að „stofna til varanlegrar samvinnu við Afganistan". Á gunnfána Bandaríkjanna og NATO er letrað „stríð gegn hryðjuverkum". Þegar Sovétríkin hrundu 1991 var mikill vandi á höndum. Réttlætingu vantaði fyrir 700 bandarískum herstöðvum vítt um hnöttinn og áframhaldandi tilvist NATO. Heimsvaldasinnar þurfa sýnilegan óvin og vanti hann þarf að búa hann til. Hann var fundinn í formi alþjóðlegs samsæris íslamskra hryðjuverkamanna, en sem kunnugt er liggja mestu olíulindir heims í löndum múslíma. Enda segin saga: hvar sem heimsvaldasinnar síðan (beint eða gegnum staðgengla) hafa ruðst inn á olíuauðug svæði, í Afganistan, Írak, Sómalíu, Súdan, Jemen m.m., hafa þeir fyrst „fundið" þar dularfulla og hættulega íslamista, yfirleitt undir nafninu Al-Kaída. Það segir sína sögu að CIA-menn hafa nýlega metið það svo sjálfir að í Afganistan séu mesta lagi 50 til 100 félagar í Al-Kaída. Þeir nota það nú sem rök fyrir útvíkkun stríðsins til Pakistans (ABC News, 27 júní sl.). Með því að veifa vígorðinu „stríð gegn hryðjuverkum" vinna vestræn auðvaldsríki tvennt: Skálkaskjól til að taka þátt í ábatasömum ránsleiðöngrum með öflugustu vígvél heims og skálkaskjól til að skerða borgaraleg réttindi heima fyrir. Össur lýsti yfir stuðningi við „stríð gegn hryðjuverkum" með þessum orðum: „Sarkozy, Frakklandsforseti, kvað skýrt að orði, og sagði að mesta sameiginlega ógnin við Rússland og þjóðir Atlantshafsbandalagsins stafaði af framferði ofbeldisfullra múslímskra öfgasamtaka." Með slíkri framsetningu án meðfylgjandi athugasemda eða efasemda gerir Össur þau orð að sínum. „Eitt af því sem Rússar vilja eiga samstarf við bandalagsþjóðirnar að uppfylltum skilyrðum er gerbreytt skotflaugavarnarkerfi, sem á að verjast hugsanlegri ógn frá þeim 27 þjóðum, sem taldar eru búa yfir skotflaugum sem gætu á átakatímum ógnað íbúum Vesturlanda, og Rússa. Nokkrir þjóðarleiðtoganna hikuðu ekki við að nefna þar sérstaklega Íran og Sýrland," segir utanríkisráðherrann athugasemdalaust. Meinar Össur með hönd á hjarta að einhver 27 ríki ógni Vesturlöndum? Og þar af séu Íran og Sýrland hættulegust? Hann kallar skotflaugavarnarkerfið „gerólíkt" kerfinu sem Bush lagði upp með. Obama sjálfur segir að nýja gerðin sé „sterkari, kænni og hraðvirkari vörn fyrir bandaríska heri og bandamenn þeirra… en fyrri gerðin" (New York Times 17. sept. 2009). Kerfið sem er í uppbyggingu verður inni á gafli Rússa, frá Eystrasaltslöndum um Pólland, Tékkland, Rúmeníu og Búlgaríu. Auk þess er í uppbyggingu þéttriðið skotflaugakerfi um Miðausturlönd, og kringum Íran sérstaklega, og frá skipum á öllum aðliggjandi hafsvæðum. „Gerólíkt"? Meinlausara? Össur túlkar Lissabonfundinn sem svo að ágreiningur við Rússa hafi verið jafnaður. Ég túlka hann hins vegar þannig að Rússar hafi beygt sig í duftið fyrir því ógnarveldi sem króar þá inni. Frá 1990 hafa Bandaríkin og NATO flutt vígstöðvar sínar í austur, komið sér upp æ fleiri nýjum herstöðvum í gömlu lýðveldum og fylgiríkjum Sovétríkjanna. Pútín reyndi að mynda ný bandalög gegn því sem hann kallaði „einpóla heim". Medvedev lét af þeirri stefnu í sumar þegar hann ásamt Kínverjum gekkst inn á harðar refsiaðgerðir gegn Íran, og þangað beinast nú spjótin meira ógnandi en nokkru sinni. Í Lissabon kom NATO í fyrsta sinn opinskátt fram sem hnattrænt bandalag, og myndar nú meginstoð í gífurlega miðstýrðu einpóla, alþjóðlegu valdakerfi. Sá valdapóll þolir ekki óháða utanríkisstefnu nokkurs ríkis, ekki einu sinni mótþróa. Ágreiningsmál eru leyst með valdboði hinna sterku í bandalaginu og með hervaldi þegar með þarf. Stefna Medvedevs á Lissabonfundinum sýnist mér vera friðkaupastefna, ekki ólík því er Chamberlain þóttist hafa keypt „frið á okkar tímum" í München 1938. Ekki sefaði það hungur úlfsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun