Alexander: Óli mun ná sér á strik Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 20. janúar 2010 17:15 Mynd/Anton „
Það var kannski bara fínt að við náðum þó jafntefli þó svo að Óli hafi ekki verið góður í gær. Þá er þetta allt í lagi,“ sagði Alexander Petersson við Vísi í dag. Ísland gerði í gær jafntefli við Serbíu, 29-29, á fyrsta leik sínum á EM í Austurríki, eftir að hafa verið með forystuna nánast allan leikinn. „Við byrjuðum mjög vel og það var mjög gaman hjá okkur á vellinum. Allir voru að berjast eins og vitleysingar. Ég veit svo ekki hvað gerðist í hálfleik því það var eins og allt annað lið hafi mætt til leiks í síðari hálfleiknum. Ég veit ekki hvort við vorum orðnir þreyttir en við vorum alla vega ekki nærri því nógu ákveðnir og í fyrri hálfleik.“ Hann segir að það hafi líka haft mikið að segja að lykilmenn eins og Ólafur Stefánsson hafi ekki náð sér á strik. „Óli var ekkert spes í gær en ég veit að hann kemur aftur. Hann gerir það alltaf.“ Á morgun mætir Ísland gestgjöfunum hér í Austurríki og reiknar Alexander með erfiðum leik. „Ég á von á mjög erfiðum leik - erfiðari en gegn Serbíu. Austurríki er með sterkt lið og Dagur [Sigurðsson] er góður þjálfari. Hann er með allt sitt á hreinu og ég tel að Austurríkismenn séu óútreiknanlegri en Serbarnir.“ „Þeir eru að vísu ekki með jafn stórar skyttur og Serbarnir en þeir eru mjög ákveðnir í öllum sínum aðgerðum. Það er því mikilvægt að við verðum sterkir einn á móti einum.“
Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira