Hvers vegna ætti þjóðin að skilja stjórnarskrána? Viktor Orri Valgarðsson skrifar 26. nóvember 2010 10:25 Hvers vegna í ósköpunum ætti þjóðin að skilja stjórnarskrána? var ég spurður í einni af fjöldamörgum umræðum sem ég hef átt við efasemdarmenn um stjórnlagaþing. Hvers vegna ætti þjóðin að skilja stjórnarskrána þegar lögfræðingar skilja hana? Hvers vegna ætti þjóðin að fá að móta stjórnmálin þegar stjórnmálamenn og lögspekingar hafa erfiðað við að skapa venju um áratugaskeið? Ég velti fyrir mér hvað "í ósköpunum" stjórnarskrá er í hugum þeirra sem aðhyllast þessi sjónarmið. Er hún bara fyrir lögfræðinga? Er hún leiktæki valdhafa? Að sjálfsögðu ekki. Stjórnarskrá er eign þjóðarinnar. Stjórnarskrá er beinlínis yfirlýsing þjóðarinnar gagnvart valdhöfum, hún setur þeim mörk og skýrar leikreglur og hún krefst réttinda fyrir alla borgara. Fyrst og fremst á stjórnarskrá að vera sáttmáli þjóðar um grundvallargildi og valdastoðir samfélagsins. En við höfum aldrei átt slíka stjórnarskrá. Stjórnarskrá þjóðar sem aldrei kom að ritun hennar eða undirstöðum, stjórnarskrá sem þjóðin ekki skilur og ber enga virðingu fyrir á ekkert erindi við þá þjóð. Stjórnarskrá sem takmarkar ekki valdmörk stjórnmálamanna heldur leyfir þeim að móta þau að eigin vild og venju með óskýrum og ruglingslegum stjórnkerfisákvæðum á ekkert erindi við sína þjóð. Stjórnarskrá sem byggir á sögulegri arfleið og forréttindum yfirstéttar, sem endurspeglar ekki hugmyndir eða vald fólksins, á ekkert erindi við sína þjóð. Því það er þjóðin sem skapar samfélagið, þjóðin sem byggir þetta land sem hefur óskoraðan rétt til að móta sitt stjórnkerfi, sín réttindi og valdmörk sinna fulltrúa. Það er grundvöllur nútímahugmynda um lýðræði að þegar allt kemur til alls er valdið okkar; samfélagið okkar. Það eru ekki forréttindi embættismanna og lögspekinga að móta og skilgreina þetta samfélag heldur eiga þeir þvert á móti að lúta valdboðum þjóðarinnar. Allt frá lýðveldisstofnun hefur verið ætlunin að endurskoða stjórnarskrá Íslands í heild, að þjóðin geri sér sinn eigin samfélagssáttmála. Þessu verkefni hefur verið frestað og það svæft um áratugaskeið. Stjórnmálamenn hafa unað sáttir við að móta eigin forréttindi og íslenska þjóðin hefur í reynd aldrei fengið valdið í sínar hendur. Menn hafa talað um "nýtt íslenskt lýðveldi" en hugsanlega hefur íslenska þjóðin aldrei fengið sitt sanna lýðveldi; ríki sem byggir á samfélagssáttmála þjóðarinnar. Nú hefur okkur loks verið gefið einstakt tækifæri til að ljúka því verkefni og við megum ekki skorast undan því. Við megum ekki fúlsa við lýðræðinu þegar við stöndum frammi fyrir því. Sama hvernig okkur finnst stjórnarskráin eigi að vera; sama hvaða stjórnmálaskoðanir, lífsskoðanir og trúarsannfæringu við höfum erum við öll jafngildir borgarar og við megum ekki hafna þessu tækifæri. Mótum sáttmála þjóðarinnar, sköpum betra samfélag fyrir komandi kynslóðir og reisum raunverulegt, íslenskt lýðveldi. Kjósum á laugardaginn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna í ósköpunum ætti þjóðin að skilja stjórnarskrána? var ég spurður í einni af fjöldamörgum umræðum sem ég hef átt við efasemdarmenn um stjórnlagaþing. Hvers vegna ætti þjóðin að skilja stjórnarskrána þegar lögfræðingar skilja hana? Hvers vegna ætti þjóðin að fá að móta stjórnmálin þegar stjórnmálamenn og lögspekingar hafa erfiðað við að skapa venju um áratugaskeið? Ég velti fyrir mér hvað "í ósköpunum" stjórnarskrá er í hugum þeirra sem aðhyllast þessi sjónarmið. Er hún bara fyrir lögfræðinga? Er hún leiktæki valdhafa? Að sjálfsögðu ekki. Stjórnarskrá er eign þjóðarinnar. Stjórnarskrá er beinlínis yfirlýsing þjóðarinnar gagnvart valdhöfum, hún setur þeim mörk og skýrar leikreglur og hún krefst réttinda fyrir alla borgara. Fyrst og fremst á stjórnarskrá að vera sáttmáli þjóðar um grundvallargildi og valdastoðir samfélagsins. En við höfum aldrei átt slíka stjórnarskrá. Stjórnarskrá þjóðar sem aldrei kom að ritun hennar eða undirstöðum, stjórnarskrá sem þjóðin ekki skilur og ber enga virðingu fyrir á ekkert erindi við þá þjóð. Stjórnarskrá sem takmarkar ekki valdmörk stjórnmálamanna heldur leyfir þeim að móta þau að eigin vild og venju með óskýrum og ruglingslegum stjórnkerfisákvæðum á ekkert erindi við sína þjóð. Stjórnarskrá sem byggir á sögulegri arfleið og forréttindum yfirstéttar, sem endurspeglar ekki hugmyndir eða vald fólksins, á ekkert erindi við sína þjóð. Því það er þjóðin sem skapar samfélagið, þjóðin sem byggir þetta land sem hefur óskoraðan rétt til að móta sitt stjórnkerfi, sín réttindi og valdmörk sinna fulltrúa. Það er grundvöllur nútímahugmynda um lýðræði að þegar allt kemur til alls er valdið okkar; samfélagið okkar. Það eru ekki forréttindi embættismanna og lögspekinga að móta og skilgreina þetta samfélag heldur eiga þeir þvert á móti að lúta valdboðum þjóðarinnar. Allt frá lýðveldisstofnun hefur verið ætlunin að endurskoða stjórnarskrá Íslands í heild, að þjóðin geri sér sinn eigin samfélagssáttmála. Þessu verkefni hefur verið frestað og það svæft um áratugaskeið. Stjórnmálamenn hafa unað sáttir við að móta eigin forréttindi og íslenska þjóðin hefur í reynd aldrei fengið valdið í sínar hendur. Menn hafa talað um "nýtt íslenskt lýðveldi" en hugsanlega hefur íslenska þjóðin aldrei fengið sitt sanna lýðveldi; ríki sem byggir á samfélagssáttmála þjóðarinnar. Nú hefur okkur loks verið gefið einstakt tækifæri til að ljúka því verkefni og við megum ekki skorast undan því. Við megum ekki fúlsa við lýðræðinu þegar við stöndum frammi fyrir því. Sama hvernig okkur finnst stjórnarskráin eigi að vera; sama hvaða stjórnmálaskoðanir, lífsskoðanir og trúarsannfæringu við höfum erum við öll jafngildir borgarar og við megum ekki hafna þessu tækifæri. Mótum sáttmála þjóðarinnar, sköpum betra samfélag fyrir komandi kynslóðir og reisum raunverulegt, íslenskt lýðveldi. Kjósum á laugardaginn.
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun