Átta ára drengur óskar eftir íbúð Örnólfur Thorlacius og Petrína Ásgeirsdóttir skrifar 8. desember 2010 06:00 Árlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi stendur nú yfir. Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru þátttakendur í átakinu, en samtökin berjast fyrir auknum mannréttindum barna hérlendis og erlendis, m.a. með því að stuðla að vernd barna gegn hvers konar ofbeldi. Margir foreldrar í ofbeldissamböndum telja sig geta haldið börnunum fyrir utan ofbeldið. Oftar en ekki er ofbeldið gegn móðurinni. Það er alla jafna vel falið fjölskylduleyndarmál, sem gerir það að verkum að börnin fá sjaldnast tækifæri til þess að tala opinskátt um líðan sína og ástandið á heimilinu. Börnin eru því ein með hugsanir sínar. Þau reyna sjálf að finna skýringar á því sem þau hafa séð og heyrt á heimilinu en þora ekki að spyrja foreldra sína að því sem brennur á þeim, eða vilja ekki íþyngja þeim með spurningum sínum. Ólíkt fullorðnum hafa börnin ekki þroska til þess að skilja það sem á gengur og eiga engin ráð við því sem er að gerast. Það gerir aðstæðurnar sérstaklega erfiðar fyrir þau og veldur kvíða og ótta, en það er einstaklingsbundið hvernig þau láta vanlíðan sína í ljós. Þessi lífsreynsla fylgir þeim áfram út ævina og hætta er á því að úr verði langvinnir erfiðleikar. Eftir því sem börnin verða eldri og þroski þeirra eykst, fara þau að skilja betur veruleikann sem þau búa við. Að sama skapi er hætta á því að þau fari að þróa með sér samviskubit og finnist þau með einhverjum hætti bera ábyrgð á ofbeldinu. Þegar spennan á heimilinu magnast, hafa þau hægt um sig og eru hrædd um að þau muni stuðla að frekari árásum á móður sína. Annað sem oft kemur fram í viðtölum við börnin er mikil eftirsjá að hafa ekki stöðvað ofbeldið og þeim finnst þau hafa brugðist móður sinni. Börnin læra snemma um erfiðar staðreyndir lífisins, staðreyndir sem þau hafa ekki enn þroska til að skilja. Af illri nauðsyn fullorðnast þau of fljótt á vissum sviðum og fá ekki að njóta þess að þroskast á eðlilegan máta eins og önnur börn. Þau fara gjarnan að gera óraunhæfar kröfur til sín og taka á sig óásættanleg hlutverk á heimilinu til þess að koma niðurbrotnum foreldrum sínum til hjálpar. Sláandi dæmi um þá ábyrgð sem ungt barn getur tekið á sig er átta ára drengur sem dvaldi með móður sinni í Kvennaathvarfinu. Hann kom reglulega til starfskvennanna og bað um leigulistann til þess að finna húsnæði fyrir sig og móður sína. Hann reyndi að finna út hvar væri ódýrast fyrir þau að leigja, með tilliti til staðsetningar, hversu háar húsaleigubætur væru greiddar í viðkomandi sveitarfélagi og hver ferðakostnaður yrði fyrir móður hans til að komast til vinnu. Sömuleiðis er vel þekkt að börn taki að sér foreldrahlutverk og annist yngri systkini á erfiðum tímum á heimilinu. Sum leggja mikið á sig til að vernda systkini sín þegar allt fer í bál og brand á heimilinu, t.d. með því að skipuleggja fyrirfram hvernig þau ætla að koma þeim í skjól. Það er afar mikilvægt að beina athygli að þeim börnum sem eru vitni að ofbeldinu. Í dag er það svo að athyglin beinist einkum að þeim sem eru beinir þolendur ofbeldisins. Afleiðingarnar, sem þetta hefur á líðan og heilsu barna, eru stórlega vanmetnar og geta fylgt þeim fram á fullorðinsár. Allir sem umgangast börn þurfa því að vera vakandi fyrir líðan þeirra. Nauðsynlegt er að koma börnunum í skilning um að ofbeldið er ekki þeim að kenna og að tilfinningar og hugsanir þeirra séu eðlileg viðbrögð við erfiðum aðstæðum. Þau þurfa að finna að þau séu ekki ein og að fjölskyldan muni fá hjálp. Við hvetjum þig því til að láta þig málið varða. Ef þú veist um barn sem býr við ofbeldi, í hvaða mynd sem er, hikaðu þá ekki við að koma barninu til aðstoðar og ráðfæra þig við starfsmenn barnaverndar í þínu sveitarfélagi. Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa frá febrúar s.l. unnið rannsóknarverkefni hér á landi um þann félagslega stuðning sem stendur börnum til boða sem eru vitni að kynbundnu ofbeldi á heimilum sínum. Verkefnið er styrkt af Dahpne-áætlun Evrópusambandsins og er unnið í samstarfi við Barnaheill – Save the Children á Spáni og Ítalíu. Niðurstöður rannsóknarinnar verða kynntar á ráðstefnu Barnaheilla - Save the Children á Íslandi í febrúar 2011. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þeir vissu sannleikann en seldu okkur efasemdir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust Jón Þór Guðjónsson Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir Skoðun Hvað er heit vinna? Sigrún A. Þorsteinsdóttir Skoðun Velferðin og valkyrjurnar Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð Skoðun Um stafrænt skólaumhverfi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Klúðrið hjá Guði Þröstur Hrafnkelsson Skoðun Skoðun Skoðun Bestum borgina með fólkið í forgrunni Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Velferðin og valkyrjurnar Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Um stafrænt skólaumhverfi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar Skoðun Fögnum úrbótum án afslátta Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Áhrifum fylgir ábyrgð Ása Valdís Árnadóttir skrifar Skoðun Að kljúfa þjóð í herðar niður Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Holland í sókn en stjórnmálin hikandi Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Valdið í reykfylltum bakherbergjum: Kerfisvandi sem krefst uppskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er heit vinna? Sigrún A. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, ferðaþjónusta og hættulegur misskilningur Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Klúðrið hjá Guði Þröstur Hrafnkelsson skrifar Skoðun Sérlausnir á grundvelli 349. greinar Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins? Spyrjið Möltu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þeir vissu sannleikann en seldu okkur efasemdir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Sjá meira
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun
Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir Skoðun
Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð Skoðun
Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar
Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar
Skoðun Valdið í reykfylltum bakherbergjum: Kerfisvandi sem krefst uppskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar
Skoðun Sérlausnir á grundvelli 349. greinar Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins? Spyrjið Möltu Erna Bjarnadóttir skrifar
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun
Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir Skoðun
Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð Skoðun