Sigurjón verst líka riftun og segist gjaldþrota gangi hún eftir Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. desember 2010 14:00 Sigurjón Þ. Árnason. Lögmaður hans telur kröfur slitastjórnarinnar fráleitar. Sigurjón eigi enga sjóði til að verjast þeim.
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segir að gangi 300 milljóna króna riftunarmál sem slitastjórn Landsbankans hefur höfðað á hendur honum vegna launauppgjörs eftir verði hann gjaldþrota. Lögmaður hans segist ekki skilja hvers vegna slitastjórn sé að krefja hann um 37 milljarða þar sem hann hafi að mestu verið atvinnulaus frá 8. október 2008. Þetta kemur fram í bréfi sem lögmaður hans, Sigurður G. Guðjónsson, sendi slitastjórn Landsbankans vegna tveggja krafna að fjárhæð samtals 37 milljarðar króna, sem fréttastofa greindi frá fyrr í dag, en Sigurjón og Halldór J. Kristjánsson eru hvor um sig krafðir um 37 milljarða króna í skaðabætur, eins og fréttastofa greindi frá í hádeginu. Kröfurnar tvær, sem kynntar voru á fundi með kröfuhöfum Landsbankans á Hótel Nordica í morgun, eru annars vegar 18 milljarðar króna vegna þess að látið var hjá líða að innheimta ábyrgð Kaupþings í Lúxemborg að andvirði sömu fjárhæðar vegna láns til Fjárfestingarfélagsins Grettis, sem var í eigu Björgólfsfeðga. Elín Sigfúsdóttir er einnig krafinn um 18 milljarða króna á þessum sama grundvelli. Hin krafan sem beinist að bankastjórunum fyrrverandi er vegna 19 milljarða króna láns sem Straumur Burðarás, sem einnig var í eigu Björgólfsfeðga, fékk afgreitt hinn 2. október 2008, aðeins sex dögum fyrir setningu neyðarlaganna og þar með hrun bankakerfisins. Sigurður G. sem telur kröfur slitastjórnarinnar fráleitar, segir í bréfinu sem hann sendi slitastjórn að Sigurjóni sé ekki ljóst hvaða tilgangi það þjóni að krefja hann um [37 milljarða króna] því slitastjórn sé fullkunnugt um að fjárhæðin verði ekki sótt í sjóði hans þar sem hann hafi að mestu verið atvinnulaus frá 8. október 2008 og þurfi auk þess að verjast 300 milljóna króna riftunarkröfu vegna launauppgjörs. Gangi hún eftir verði Sigurjón gjaldþrota, þar sem hann eigi ekki eignir til að mæta kröfunni.
Tengdar fréttir Slitastjórn Landsbankans krefur stjórnendur um 37 milljarða Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjórar Landsbankans, eru hvor fyrir sig krafðir um 37 milljarða króna en slitastjórn Landsbankans hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur þeim vegna meintrar vanrækslu. Þá er Elín Sigfúsdóttir krafin um 18 milljarða króna. 1. desember 2010 12:00 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira
Slitastjórn Landsbankans krefur stjórnendur um 37 milljarða Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjórar Landsbankans, eru hvor fyrir sig krafðir um 37 milljarða króna en slitastjórn Landsbankans hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur þeim vegna meintrar vanrækslu. Þá er Elín Sigfúsdóttir krafin um 18 milljarða króna. 1. desember 2010 12:00