Tímabærar gjaldþolsrannsóknir Ólafur Benedikt Þórðarson skrifar 16. nóvember 2010 17:35 Eftir að auðlindanefndin lauk störfum og sjávarútvegsráðherra lagðist undir feld með hinar ýmsu niðurstöður nefndarbrotanna, Þá huggnast þjóðinni örugglega best tilboðsleiðin svokallaða. Hún kemur til með að færa þjóðinni og þar með eigendum auðlindarinnar mesta arðinn. Það sem ráðherra hefur leigt út af skötuselskvóta og það sem ku vera í pípunum hjá honum eru mjög athyglisverðar gjaldþolsrannsóknir.Kvótalaus skip Kvótalaus skip hafa öll verið til með samþykki og á ábyrgð stjórnvalda á hverjum tíma, mikið af þessum skipum hafa verið í eigu félagsmanna og félaga í LÍÚ sem hafa selt þessi skip vegna ýmissa hagræðinga eða nýsmíði sem oft hefur verið fjármögnuð með leigu veiðiheimilda á glæpsamlegu verði alla tíð.Ánauð og helsi Þegar þjóðinni hefur blöskrað hegðun sægreifanna hvað mest sem hafa leigt frá sér stóran hluta veiðiheimildanna, keypt banka, bílaumboð, eða bara legið í sólinni í suðurhöfum og auðlind þjóðarinnar sá um skotsilfrið. Þá hafa stjórnvöld smátt og smátt látið undan þrýstingi almennings og dregið smátt og smátt úr heimild til framsals með aukinni veiðiskyldu. Það hefur leitt til betri skortstöðu sægreifanna og leitt til stöðugra leiguverðshækkanna sem við fíklarnir höfum orðið að sætta okkur við.Réttlætinu skal fullnægt Við endurúthlutun veiðiheimilda skal unnið eftir sömu þriggja ára reglu og í upphafi kvótakerfisins og skal þá miðað við kvótaárið 2008 -2009 og árin þar á undan. Þar sem talíbanskt stríðsástand hefur ríkt á leigumarkaði eftir kvótaárið 2008-2009 getur tíminn þaðann frá aldrei verið til viðmiðunar. Ef það skildi vefjast fyrir einhverjum hvað ég fengi mikinn kvóta eftir slíka leiðréttingu þá minni ég á þá staðreynd að minn hlutur verður jafn stór og þinn og ég þarf ekki lengur að kaupa þýfi en í stað þess glaður greiða þjóðinni tíund fyrir afnotaréttinn. Það gæti dugað til þess að koma í veg fyrir sameiningu allra barnaskóla og spítala í landinu í einn barnaskólabæ og einn spítalabæ.Hiklaust og fumlaust Hefur sjávarútvegsráðherra gengið fram fyrir skjöld þjóðarinnar og skoðað í þaula þau tækifæri sem þessi svívirta þjóð getur átt til þess að mæta öllum þeim niðurskurði sem blasir við þjóðinni. Með leigu á skötuselskvóta hefur hann sýnt að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Þessi leiga kemur alla vega í veg fyrir að 400 tonnum af skötusel er hent í sjóinn. Þá hafa borist þær fréttir að ráðherrann vinni að útleigu á flestum kvótabundnum tegundum og ber þar hæst 20.000 tonn af þorskkvóta á 70 kr kílóið. Það verða mikil viðbrigði fyrir okkur smælingjana um leið og í þessu útboði felst áreiðanleg gjaldþolskönnun. Því þeir sem bjóða í þessu útboði eru að varða leiðina fyrir ráðherra hvað verðlagningu varðar í væntanlegri útboðsleið, eftir endurúthlutun veiðiheimilda með þeim hætti sem hér að framan greinir. Að lokum vil ég hvetja sjávarútvegsráðherra til þess að sleppa ekki takinu af auðlindinni fyrir ekki neitt, í heilan eða hálfan mannsaldur. Útboðsleiðin færir þjóðinni tekjur af auðlind sinni en samningaleiðin áframhaldandi óráðsíu, og ef þér tekst vel til kæri Jón get ég alveg séð fyrir mér styttunna af Jóni Sigurðssyni flutta á Hrafnseyrarhlað og styttu af sjávarútvegsráðherra vorum Jóni Bjarnasyni komi fyrir á stallinum og sýnt með því þingheimi að þeir sem komast á slíka stalla hafa barist til sigurs fyrir réttlæti til handa almenningi. Ólafur Benedikt Þórðarson skipstjóri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir Skoðun Skoðun Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar