Skoðun

Jólasveinar í Efstaleiti

Ástþór Magnússon skrifar

Mikil umræða er nú meðal frambjóðenda hver getur afhent sameiginlega yfirlýsingu til RÚV. Samkvæmt nýjum "pólitískum reglum" RÚV tala þeir við enga frambjóðendur fram að kosningum.

RÚV tekur hinsvegar við auglýsingum og peningum frambjóðenda í stað þess inna af hendi lögboðið upplýsingahlutverk ríkisfjölmiðlana.

RÚV ritskoðar síðan auglýsingar frambjóðenda og vill ráða "spurðu svo og sagði svo". Auglýsingar jólasveina virðast t.d. algerlega bannaðar á RÚV.

Ég er með lausn á því vandamáli frambjóðenda hvern á að senda í Efstaleiti með yfirlýsingu.

Í tilefni af því að jólin nálgast, legg ég til að einhver klæðist rauða spjaldinu og mæti sem Jólasveinninn í Efstaleiti til að afhenda yfirlýsinguna. Enda er það mest viðeigandi að jólasveinn afhendi þessum jólasveinum á RÚV þessa yfirlýsingu.

Því miður er ég staddur erlendis og get því ekki mætt hvorki sem jólasveinn né sírenuvörður í þetta sinn til RÚV, en það eru margir aðrir ágæti jólasveinar á jöflaeyjunni.

Hér er sjónvarpsauglýsing send til RÚV:

<http://www.youtube.com/watch?v=_Tb3qlebTB8%C2%A0

Hér er ávaxtaveisla á RÚV:

http://www.youtube.com/watch?v=ORwkC8kqGLM&feature=player_embedded

Ástþór Magnússon

Framboð 7176 til Stjórnlagaþings: www.austurvollur.is/thor






Skoðun

Sjá meira


×