Dagur: Stærsta stundin í sögu austurrísks handbolta Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Vín skrifar 29. janúar 2010 13:30 Dagur Sigurðsson gerði frábæra hluti með Austurríki á EM. Mynd/DIENER/Leena Manhart
Dagur Sigurðsson var afar stoltur af árangri austurríska landsliðsins sem lauk keppni á EM í handbolta í gær. Austurríki vann þá sigur á Rússum, 31-30, og þar með sinn annan sigur í keppninni. Það dugði liðinu til að ná níunda sæti mótsins, einu ofar en stóri bróðir frá Þýskalandi. „Þetta er eiginlega algjört rugl og mesta snilldin er eiginlega að við náðum að toppa þjóðverja - eigum við að ræða það eitthvað?" sagði hann og skellihló þegar Vísir ræddi við hann eftir leikinn gegn Rússum í gær. „Við erum líka að skilja eftir margar aðrar sterkar þjóðir fyrir aftan okkur. Þjóðverja, Svía, Ungverja, Serba og Rússa. Þetta er því í raun alveg ótrúlegt og ég er auðvitað gríðarlega stoltur." „Þetta er mjög stór dagur fyrir mig enda var ég nú að klára stórt verkefni sem mér var treyst fyrir. Það fyrsta var að komast hingað til Vínar í milliriðilinn og svo standa sig hér. Það tókst." „Liðið spilaði í raun sex góða leiki á mótinu þó svo að leikurinn gegn Rússum hafi ekki verið besti handboltaleikur í heimi. Mér fannst hann reynda vera lengsti handboltaleikur í heimi. Hann ætlaði aldrei að klárast," sagði hann og brosti. „Ég held að þetta sé stærsta stundin í sögu austurrísks handbolta. Ég held að þeir átti sig ekki á þessu. Þeir voru að vinna Rússa og ég veit vel hvað það þýðir." Dagur heldur í dag aftur til Berlínar þar sem hann er þjálfari Füchse Berlin í þýsku úrvalsdeildinni. „Þar er bara æfing í kvöld. Nú tekur við sú vinna," sagði hann. Samningur Dags við austurríska handboltasambandið rennur út eftir keppnina en hann hefur áður greint frá því að það vilji halda honum. „Þetta er ekki bara undir mér komið hvað gerist. Ég mun líklega hitta forráðamenn Füchse í næstu viku og sjá hver staðan er hjá þeim. Þeir þurfa líka að fá að vera með í ráðum."
Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Milner aftur til Liverpool Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira