Umhverfi og sjálfbær þróun í stjórnarskrá Stefán Gíslason skrifar 22. nóvember 2010 15:45 Helsta ástæða þess að ég gef kost á mér til Stjórnlagaþings er umhyggja mín fyrir íslenskri náttúru og komandi kynslóðum. Ég vil sem sagt að hagsmuna íslenskrar náttúru og komandi kynslóða verði verði vel gætt í nýrri stjórnarskrá í samræmi við hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Þessi áhersla mín felur m.a. í sér, að í stjórnarskránni verði kveðið skýrt að orði um að náttúruauðlindir Íslands séu óframseljanleg sameign þjóðarinnar. Þar þarf einnig að koma fram að sjálfbær þróun sé leiðarljós í stjórnun landsins og ákvarðanatöku.Staðan í dag Í núverandi stjórnarskrá er ekki fjallað um íslenska náttúru eða sjálfbæra þróun, enda var grunnurinn að stjórnarskránni lagður fyrir margt löngu. Hins vegar er víða að finna slík ákvæði í stjórnarskrám annarra landa, bæði í Evrópu og í öðrum heimsálfum. Meginlínan í þeim ákvæðum er annars vegar að fólkið í viðkomandi landi eigi rétt á að lifa í heilbrigðu umhverfi og hins vegar að þessu sama fólki og stjórnvöldum beri að vernda náttúruna með hagsmuni komandi kynslóða í huga.Franski umhverfissáttmálinn Franska stjórnarskráin er líklega sú sem gengur lengst í áherslunni á umhverfismál og sjálfbæra þróun. Árið 2004 var sérstökum umhverfisviðauka, svonefndum Umhverfissáttmála, bætt við stjórnarskrána, en þessi viðauki hefur sömu lagalegu stöðu og stjórnarskráin sjálf samkvæmt túlkun franska stjórnlagadómstólsins. Viðaukinn byggir á þeirri vitund þjóðarinnar að framtíð og tilvera mannkynsins sé tengd náttúrlegu umhverfi órofa böndum, að umhverfið sé sameiginleg arfleifð mannkynsins alls, og að ofnýting náttúruauðlinda, framleiðsla og neysla hafi áhrif á líffræðilega fjölbreytni, lífsgæði og þróun mannlegs samfélags. Til að tryggja sjálfbæra þróun megi ákvarðanir sem ætlað er að mæta þörfum núlifandi kynslóðar ekki stefna í voða möguleikum komandi kynslóða og annars fólks til að mæta þörfum sínum. Þarna er skilgreining Brundtlandnefndarinnar sem sagt fléttuð inn í stjórnarskrána. Í viðaukanum kemur einnig fram að sérhver einstaklingur eigi rétt á að lifa í heilnæmu umhverfi - og skyldu til að taka þátt í að vernda umhverfið og bæta. Sá sem veldur tjóni á umhverfinu skal sjálfur leggja sitt af mörkum til að bæta tjónið. Þarna er einnig að finna ákvæði um að tekið skuli fullt tillit til Varúðarreglunnar og að áhættumati skuli beitt til að lágmarka líkur á tjóni. Hvers kyns opinber stefnumótun skal stuðla að sjálfbærri þróun. Þá er tiltekið að sérhver einstaklingur skuli hafa aðgang að upplýsingum um umhverfismál og rétt til að taka þátt í opinberri ákvarðanatöku sem kann að hafa áhrif á umhverfið. Fræðsla og þjálfun um umhverfismál á að stuðla að því að réttindi og skyldur samkvæmt ákvæðum sáttmálans séu virt í framkvæmd. Sömuleiðis er tiltekið að rannsóknir og nýsköpun skuli stuðla að verndun og þróun umhverfisins.Noregur Ákvæði um umhverfismál og sjálfbæra þróun er að finna í stjórnarskrám margra annarra landa, þó að ítarleg ákvæði á borð við þau frönsku séu vandfundin. Af dæmum úr nágrannalöndunum má nefna, að samkvæmt norsku stjórnarskránni (grein 110 b) á sérhver einstaklingur rétt til umhverfis sem stuðlar að heilbrigði. Þá ber að varðveita framleiðni og fjölbreytni hins náttúrulega umhverfis. Stjórnun náttúruauðlinda á að byggjast á heildarstefnumótun til langs tíma, þannig að samsvarandi réttur komandi kynslóða sé jafnframt tryggður. Þarna er hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar í raun fléttuð inn í textann, enda þótt sjálfbærnihugtakið sé ekki nefnt sem slíkt. Í norsku stjórnarskránni er einnig ákvæði um rétt almennings til umhverfisupplýsinga.Finnland og Eistland Í finnsku stjórnarskránni er að finna svipuð ákvæði og í þeirri norsku. Þar er m.a. tilgreint að allir landsmenn beri ábyrgð á náttúrunni og líffræðilegri fjölbreytni hennar, umhverfinu og þjóðararfleifðinni. Í stjórnarskrá Eistlands er sérstaklega getið um skyldu manna til að bæta fyrir hvert það tjón sem þeir kunna að valda umhverfinu.Portúgal og Sviss Stjórnarskrá Portúgals gengur um margt lengra en aðrar stjórnarskrár Evrópuríkja í að flétta saman vistfræðilega og félagslega þætti innan ramma sjálfbærrar þróunar. Þar er m.a. að finna ákvæði þar sem mikilvægi skipulagsáætlana í þessu sambandi er sérstaklega undirstrikað. Svipað má reyndar segja um stjórnarskrá Sviss. Afríkuríki Evrópuríki eru ekki ein um að leggja áherslu á umhverfismál og sjálfbæra þróun í stjórnarskrám sínum. Þannig hafa um 2/3 allra Afríkuríkja (32 ríki) samþykkt sérstök stjórnarskrárákvæði um réttinn til heilbrigðs umhverfis. Eitt gleggsta dæmið er að finna í stjórnarskrá Súdans, en þar ber ríkinu að stuðla að lýðheilsu, hvetja til íþróttaiðkunar og vernda náttúrulegt umhverfi, hreinleika þess og náttúrulegt jafnvægi, til að tryggja örugga og sjálfbæra þróun komandi kynslóðum til handa.Orð og gjörðir Ljóst má vera að ákvæði í stjórnarskrá er eitt, en framfylgdin annað. Hvað sem því líður er afar mikilvægt að þessir grundvallarþættir séu tilgreindir í stjórnarskrá, enda fráleitt að hugsa sér að þjóð hugsi ekki til komandi kynslóða þegar hún setur sér grunnreglur sem gilda eiga næstu áratugi. Þessi áhersla endurspeglast enda í niðurstöðum þjóðfundarins 7. nóvember sl., þar sem fram kemur m.a. að náttúru Íslands og auðlindir beri að vernda fyrir komandi kynslóðir.Burt með gamla húsgangsháttinn! Hér hefur verið stiklað á stóru, en eins og sjá má er af nógu að taka þegar svipast er um eftir fyrirmyndum að ákvæðum um umhverfismál og sjálfbæra þróun sem nýtast mættu við gerð nýrrar stjórnarskrár fyrir Ísland. Viðfangsefnið er í sjálfu sér einfalt; stjórnarskráin þarf að vera í takt við hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Í allri þessari vinnu þarf að hafa hugfast að „maðurinn fékk ekki jörðina í arf frá forfeðrum sínum, heldur hefur hann hana að láni frá börnunum sínum". Íslendingar þurfa að hverfa frá þeim „gamla húsgangshætti", sem Þorvaldur Thoroddsen nefndi svo á þarsíðustu öld, að „hugsa eingöngu um stundarhaginn, nokkra aura í svipinn, en láta sér standa á sama hvort gerður sé stór skaði öldum og óbornum". Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Kolefnissporið mitt Jón Fannar Árnason Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen Skoðun Nýtt ár, nýr veruleiki, nýtt samtal Kristinn Árni Hróbjartsson Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson Skoðun Skoðun Skoðun Nýtt ár, nýr veruleiki, nýtt samtal Kristinn Árni Hróbjartsson skrifar Skoðun Kolefnissporið mitt Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson skrifar Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar