Nýgreindir með HIV/alnæmi aldrei fleiri en nú á Íslandi Sigurlaug Hauksdóttir skrifar 1. desember 2010 14:48 Fyrsti desember er hinn alþjóðlegi baráttudagur gegn HIV/alnæmi. Á þessu ári hafa þegar 20 manns greinst með HIV/alnæmi hérlendis − mesti fjöldi nýgreindra á einu ári frá upphafi mælinga árið 1983. Við þurfum að skilja hvað sé í gangi til að fyrirbyggja frekari smit. Hverjir greinast? Á undanförnum árum hefur um helmingur greindra verið fólk af erlendum uppruna. Aðfluttum frá löndum utan ESB/EES sem sækja um dvalarleyfi ber að fara í heilbrigðisskoðun við komuna til landsins. Þetta dregur úr hugsanlegri smithættu en þessi ráðstöfun eykur jafnframt lífslíkur og lífsgæði þeirra sem greinast jákvæð. Fimm samkynhneigðir einstaklingar greindust jákvæðir það sem af er árinu samanborið við að um 2-3 einstaklinga á ári síðan 1997. Tíðni greininga meðal samkynhneigðra í Evrópu hefur tvöfaldast síðastliðin fimm ár. Hér verðum við því að halda vöku okkar. Að meðaltali hefur einn sprautufíkill greinst á ári hverju fram til ársins 2007. Þá varð breyting á og hafa 19 einstaklingar greinst síðan þá. Við skulum skoða þennan hóp sérstaklega. HIV-jákvæðir sprautufíklar Þeir sprautufíklar sem hafa greinst HIV-jákvæðir á síðustu árum eru jafnt af báðum kynjum og búa oftast á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Aðstæður þeirra hafa oft verið mjög erfiðar og hefur neyslan flækt líf þeirra og aðstæður enn meir. Þeir eru gjarnan heimilislausir og í litlum tengslum við fjölskyldur og ættingja. Oft eru þeir í líkamlega lélegu ásigkomulagi og með lítið sjálfstraust. Veruleiki þeirra einkennist gjarnan af miklu harðræði og vanlíðan. Af þeim sem komu á Vog árið 2009 sprautuðu 214 sig reglulega í æð en Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, telur að þeir geti verið um 700 í dag. Neyslan gerir fíklana gjarnan of andvaralausa til að verjast smiti með notkun óhreinna sprauta og sprautunála. Rannsókn árið 2008 á 69 sprautufíklum hérlendis sýndi að um 80% sprautufíklanna höfðu deilt sprautum og sprautunálum sín á milli. Stundum fjármagna einnig fíklar neyslu sína með því að selja sig, eykur það viðkvæmni þeirra fyrir HIV-smiti enn frekar. Hér myndast jafnframt smithætta út í samfélagið vegna þeirra sem kaupa kynlífsþjónustu. Sprautufíklar greinast gjarnan við innlögn á sjúkrahús eða meðferðarstofnanir, en á Landspítalanum er fagfólk sem vinnur saman að málefnum HIV-jákvæðra. Þegar einhver greinist með HIV er samkvæmt sóttvarnalögum reynt að rekja smit viðkomandi, en þegar um sprautufíkla hefur verið að ræða hefur oft reynst erfitt að ná til fólksins og fá það til að koma í skoðun. Það er því líklegt að fleiri séu smitaðir út í samfélaginu án þess að búið sé að greina þá. Ábyrgð okkar Brýnt er að við hlúum vel að félagslegum aðstæðum ungs fólks og aðgengi þess að menntun og störfum til að fyrirbyggja að þau leiðist út í vímuefnaneyslu. Einnig er þarft að vímuefnaneytendur sem ekki sprauta sig þekki vel til HIV og hættunnar sem fylgir því að nota sprautur og sprautunálar. Upplýsa þarf jafnframt um meðferðarúrræði og veita nauðsynlega aðstoð á þeirri vegferð. Sprautufíklar þurfa einnig ráðgjöf og stuðning, upplýsingar og aðstoð til að komast í viðeigandi meðferð. Hér hefur faglegt og jákvætt viðmót fagaðila og starfsfólks mikið að segja. Auðvelt aðgengi að hreinum sprautum og sprautunálum og staður til að skila þeim sem eru óhreinar þarf jafnframt að vera til staðar. Það getur dregið úr sýkingum og smithættu. Fræðsla um HIV, lifrarbólgur, sprautunotkun og meðferðarúrræði eru mikilvæg, sömuleiðis aðgengi að lyfja-viðhaldsmeðferð við ópíötum. Ef samtímis drægi úr mögulegum fordómum í samfélaginu, myndi það geta auðveldað fíklum skrefin inn í heilbrigðiskerfið, þiggja þá aðstoð sem þar er í boði og gefa þeim þannig kost á að auka heilbrigði sitt og vellíðan. Við höfum verk að vinna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Bakslag í skoðanafrelsi? Kári Allansson Skoðun Snorri Másson er ekki vandinn – hann er viðvörun Helen Ólafsdóttir Skoðun Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir Skoðun Ofbeldi í skólum: Áskoranir og leiðir til lausna Soffía Ámundadóttir Skoðun Boðsferð Landsvirkjunar Stefán Georgsson Skoðun Ástin er falleg Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ein saga af sextíu þúsund Halldór Ísak Ólafsson Skoðun Að láta mata sig er svo þægilegt Björn Ólafsson Skoðun Nýjar reglur um réttindi fólks í ráðningarsambandi Ingvar Sverrisson Skoðun Hingað og ekki lengra – Um þögnina sem styður ofbeldi Halldóra Sigríður Sveinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ömurlegur fyrri hálfleikur – en er enn von? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Vitund, virðing og von: Jafningjastuðningur í brennidepli Nína Eck skrifar Skoðun Hingað og ekki lengra – Um þögnina sem styður ofbeldi Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Ein saga af sextíu þúsund Halldór Ísak Ólafsson skrifar Skoðun Að láta mata sig er svo þægilegt Björn Ólafsson skrifar Skoðun Nýjar reglur um réttindi fólks í ráðningarsambandi Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Ofbeldi í skólum: Áskoranir og leiðir til lausna Soffía Ámundadóttir skrifar Skoðun Bakslag í skoðanafrelsi? Kári Allansson skrifar Skoðun Eplin í andlitshæð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Bataskólinn – fyrir þig? Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir skrifar Skoðun Boðsferð Landsvirkjunar Stefán Georgsson skrifar Skoðun Samstarf um loftslagsmál og grænar lausnir Sigurður Hannesson,Nótt Thorberg skrifar Skoðun Ástin er falleg Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Líknarmeðferð og dánaraðstoð eru ekki andstæður heldur nauðsynleg umræðuefni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Grunnstoðir sveitarfélagsins efldar til muna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Laugarnestangi - til allrar framtíðar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Að vera séður og heyrður getur bjargað lífi – Gulur september minnir okkur á að hlúa að hjartanu Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur um atburðina á Gaza Egill Þ. Einarsson skrifar Skoðun Öryggi geðheilbrigðis Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun Mjóddin og pólitík pírata Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Okkar eigin Don Kíkóti Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Sýnum í verki að okkur er ekki sama Anna Sigga Jökuls Ragnheiðardóttir skrifar Skoðun Snorri Másson er ekki vandinn – hann er viðvörun Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Drúsar og hörmungarnar í Suwayda Armando Garcia skrifar Skoðun Hjarta samfélagsins í Þorlákshöfn slær við höfnina Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Marserum fyrir jafnrétti í íþróttum Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Tímamóta umbætur í nýju kerfi almannatrygginga Huld Magnúsdóttir,Sigríður Dóra Magnúsdóttir,Unnur Sverrisdóttir,Vigdís Jónsdóttir skrifar Skoðun Öflugt atvinnulíf í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Persónudýrkun vinstrisins Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Sjá meira
Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir Skoðun
Skoðun Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir skrifar
Skoðun Líknarmeðferð og dánaraðstoð eru ekki andstæður heldur nauðsynleg umræðuefni Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Að vera séður og heyrður getur bjargað lífi – Gulur september minnir okkur á að hlúa að hjartanu Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Tímamóta umbætur í nýju kerfi almannatrygginga Huld Magnúsdóttir,Sigríður Dóra Magnúsdóttir,Unnur Sverrisdóttir,Vigdís Jónsdóttir skrifar
Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir Skoðun