Kópavogur í verulegum fjárhagsvanda Arnþór Sigurðsson skrifar 1. desember 2010 03:00 Það eru vond tíðindi í loftinu í Kópavogi enda liggur fyrir að skera niður rekstur bæjarfélagsins um 700 milljónir. Þjónusta bæjarfélagsins mun verða sett niður á öllum sviðum en þó er það sameiginleg niðurstaða að verja grunnþjónustuna með öllum tiltækum ráðum. Viðskilnaður Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins er slíkur að litlu má muna að bæjarfélagið sé sett í gjörgæslu félagsmálaráðuneytisins. Það er nöturleg aðkoma nýrrar bæjarstjórnar við þessar aðstæður, fyrsta verkefni nýs meirihluta er að skerða þjónustu við börn, aldraða og láta af stuðningi við ýmis góð mál sem skipta samfélagið í Kópavogi miklu máli. Kópavogsbúar hafa því miður veðjað á ranga stjórnmálaflokka í 20 ár til þess að gæta hagsmuna sinna. Til þess að byggja upp samfélag sem stendur af sér erfiða tíma. Kópavogur hefur verið rekinn á glæfralegan hátt og kjörnir fulltrúar hafa farið ógætilega með skattfé íbúanna. Bæjarfélagið hefur verið skuldsett upp fyrir öll mörk og nú er þannig komið að vaxtabyrðin er slík að grunnþjónustan er farin að líða fyrir. Það er mikilvægt að halda því til haga að fjárfestingar í landakaupum undanfarinna ára hafa verið langt fram úr öllu hófi og er það í raun illskiljanlegt hvernig meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna komst að þeirri niðurstöðu að fjárfesta með þeim hætti sem gert hefur verið. Það hefur gjarnan verið sagt að sjálfstæðismenn geti einungis stjórnað í uppsveiflu, þegar nóg er af fjármagni í umferð eins og var. Sönnun þess liggur á borðinu þessa dagana í Kópavogi, sannleikurinn er nefnilega sá sjálfstæðismenn kunna ekkert með fé að fara enda stendur Kópavogsbær verr að vígi en nokkru sinni fyrr eftir langa valdatíð íhaldsins og framsóknarmanna. Það er sársaukafullt að taka þátt í þeim niðurskurði sem framundan er og er það sem eitur í beinum félagshyggjufólks að neyðast í þær aðgerðir sem framundan eru til þess að bjarga bæjarfélaginu undan þeirri smán að missa fjárræði yfir til félagsmálaráðuneytisins. Reyndar er það engin nýlunda að það virðist vera verkefni félagshyggjufólks að moka flórinn eftir hægriöflin. Þó skal hafa það hugfast að það koma dagar eftir þennan dag og undir öruggri stjórn nýja meirihlutans í Kópavogi er hugsað lengra en til morgundagsins. Kópavogur mun rísa upp úr öskustónni og blómstra á ný. Þá er hyggilegt að leggja það vel á minnið til framtíðar að forðast gylliboðin og sjónhverfingarnar sem frjálshyggjan býður gjarnan uppá. Afleiðingarnar eru samfélaginu allt of dýrar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun Halldór 27.12.2025 Halldór Skoðun Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Sjá meira
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar