Skoðun

Forsetinn - umboðsmaður almennings

Kolbeinn Aðalsteinsson skrifar

Kosningar á íslandi hafa verið frá því að stéttarflokkar komu fram 1916, barátta milli stétta landsins. Þrátt fyrir að einstaklingar sem kjósa sama flokkinn hafi gerólíkar skoðanir um hvernig landinu skuli stjórnað geta þeir þó tilheyrt sama stjórnmálaflokknum.

Sægreifinn sem hefur fengið kvótann gefins frá spilltum stjórnmálamönnum sem og bankamaðurinn sem misst hefur aleiguna með ríkisyfirtöku bankana hafa báðir hagsmuni sína hjá sjálfstæðisflokknum. Þessir tveir einstaklingar hafa eflaust viljað fara gerólíkar leiðir í því hvernig stjórnvöld hefðu átt að bregðast við hruninu, en þeir kjósa þó á sama veg. Þegar kemur því til þingkosninga skerast línur oft og erfitt er að sjá hver ber raunverulega sigur úr býtum aðrir en þeir sem hafa fengið valdið að gjöf frá almenningi.

Hvað getur því almenningur gert þegar hann hefur komist að því að þeir sem hafa fengið þeirra umboð til valds fari ílla með það? Eins og staðan er í dag getur hinn almenni borgari lítið annað gert en beðið og kosið hugsanlega öðruvísi næst og vonað það besta. Margt getur gerst á fjórum árum inni á þingi. Einnig getur lítið sem ekkert gerst og oft er það versta leiðin að gera ekkert.

Myndi almenningur ekki vilja taka því fagnandi að geta sjálfur veitt þingheimi aðhald. Ekki einungis setið á bekknum og horft á. Horft á meðan þingið gerir ekkert. Hvað með ef forsetinn okkar fengi meiri vald?

Það vald fengi hann einungis í nafni þjóðarinnar og væri raun umboðsmaður almennings. Hann yrði raunverulegt sameingartákn þjóðarinnar en bætum á hann aukinni þjónustu við okkur hinn almenna borgara.

Beint lýðræði þjóðar, þar sem hún veitir forsetanum umboðið sitt til þess að fara með hennar mál er eitthvað sem þarf og að mínu mati mun koma. Hvernig væri ef við gætum haft áhrif með því að búa til okkar eigin neitunar heimild ef valdhafar fara yfir stríkið og stjórnarandstæðan getur annað hvort ekki stöðvað þá eða er þá með þeim. Einsog dæmi er um þegar Alþingi samþykkti í sameiningu að skaffa sér eftirlaun og svo þenja ríkistyrki til stjórnmálaflokka.

Íslendingar eru fróð og sterk þjóð sem gengið hefur í gegnum marga erfiðleika og því tel ég hana vel geta valdið því valdi sem hér er skotið að. Forsetinn á að vera sameingartákn þjóðar og með því að koma þessu kerfi á. Beint lýðræði með undirskriftar listum sem og almennum net kosningum.












Skoðun

Sjá meira


×