Bláfjöllin heilla Heiður Hjaltadóttir skrifar 19. nóvember 2010 03:00 Breiðablik er eitt þeirra íþróttafélaga á höfuðborgarsvæðinu sem heldur úti öflugri skíðadeild. Hér er skorað á stjórnendur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að taka höndum saman og klára þá undirbúningsvinnu sem er ólokið sem allra allra fyrst svo hægt sé að hefja snjóframleiðslu í Bláfjöllum næsta vetur og höfuðborgarbúar geti stundað íþrótt sína áhyggjulausir líkt og íbúar fyrir norðan og austan. Ef horft er til reksturs Bláfjalla, þ.e. tekna og gjalda, og vísa ég þá á heimasíðu Reykjavíkurborgar, þá kemur fram í fjárhagsáætlun borgarinnar að tekjurnar sem fást fyrir sölu aðgangsmiða, skíða- og brettaleigu og svo veitingar, duga vel fyrir launakostnaði og öðrum rekstrarkostnaði. Það var reyndar ekki hagnaður af rekstrinum veturna 2008 og 2009 en það skýrist af afskriftunum sem gerðar eru ár hvert á mannvirkjunum sem í fjöllunum eru. Ef hins vegar hægt er að tryggja örugga opnun á 100 dögum eða fleirum ár hvert, er það alveg ljóst að ásóknin í Bláfjöll mun aukast til muna. Bæði mun iðkendum skíðadeildanna fjölga og einnig ferðamönnum og áhugafólki um skíða- og brettaíþróttina sem myndi leggja leið sína í Bláfjöll. Svo það verði er nauðsynlegt að koma á snjóframleiðslu svo við lendum ekki aftur í því að fá aðeins fimm opnunardaga eins og raunin varð á í fyrra vegna snjóleysis. Þessa fimm daga heimsóttu þó að jafnaði 2.000 manns Bláfjöll dag hvern. Aðsóknin um nýliðna helgi sýnir líka að íbúar höfuðborgarsvæðisins láta ekki neikvæða umræðu um skíðasvæðin hafa á áhrif á sig. Rúmlega 4.000 manns á sunnudag sýnir best hvað áhuginn er mikill. Hver er aðsóknin í önnur íþróttamannvirki höfuðborgarsvæðisins dag hvern af almenningi? Því skal einnig haldið til haga að skíðaíþróttin er það sport sem er hvað vinsælast að stunda af heilu fjölskyldunum og eru engar aðrar íþróttir á Íslandi þar sem fólk mætir að morgni með nestið sitt og eyðir deginum saman í fjöllunum í góðri útivist og hreyfingu. Þetta er ein besta forvörnin sem hægt er að hugsa sér fyrir börnin okkar og er sagt að besta forvörnin sé sú þegar fjölskyldan ver tíma sínum saman. Hvar er betra að verja honum en í Bláfjöllum? Rekstur Bláfjalla mun vel geta staðið undir sér í framtíðinni og áhrifaríkasta leiðin til þess er að koma á fót snjóframleiðslu á svæðinu sem allra fyrst. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Breiðablik er eitt þeirra íþróttafélaga á höfuðborgarsvæðinu sem heldur úti öflugri skíðadeild. Hér er skorað á stjórnendur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að taka höndum saman og klára þá undirbúningsvinnu sem er ólokið sem allra allra fyrst svo hægt sé að hefja snjóframleiðslu í Bláfjöllum næsta vetur og höfuðborgarbúar geti stundað íþrótt sína áhyggjulausir líkt og íbúar fyrir norðan og austan. Ef horft er til reksturs Bláfjalla, þ.e. tekna og gjalda, og vísa ég þá á heimasíðu Reykjavíkurborgar, þá kemur fram í fjárhagsáætlun borgarinnar að tekjurnar sem fást fyrir sölu aðgangsmiða, skíða- og brettaleigu og svo veitingar, duga vel fyrir launakostnaði og öðrum rekstrarkostnaði. Það var reyndar ekki hagnaður af rekstrinum veturna 2008 og 2009 en það skýrist af afskriftunum sem gerðar eru ár hvert á mannvirkjunum sem í fjöllunum eru. Ef hins vegar hægt er að tryggja örugga opnun á 100 dögum eða fleirum ár hvert, er það alveg ljóst að ásóknin í Bláfjöll mun aukast til muna. Bæði mun iðkendum skíðadeildanna fjölga og einnig ferðamönnum og áhugafólki um skíða- og brettaíþróttina sem myndi leggja leið sína í Bláfjöll. Svo það verði er nauðsynlegt að koma á snjóframleiðslu svo við lendum ekki aftur í því að fá aðeins fimm opnunardaga eins og raunin varð á í fyrra vegna snjóleysis. Þessa fimm daga heimsóttu þó að jafnaði 2.000 manns Bláfjöll dag hvern. Aðsóknin um nýliðna helgi sýnir líka að íbúar höfuðborgarsvæðisins láta ekki neikvæða umræðu um skíðasvæðin hafa á áhrif á sig. Rúmlega 4.000 manns á sunnudag sýnir best hvað áhuginn er mikill. Hver er aðsóknin í önnur íþróttamannvirki höfuðborgarsvæðisins dag hvern af almenningi? Því skal einnig haldið til haga að skíðaíþróttin er það sport sem er hvað vinsælast að stunda af heilu fjölskyldunum og eru engar aðrar íþróttir á Íslandi þar sem fólk mætir að morgni með nestið sitt og eyðir deginum saman í fjöllunum í góðri útivist og hreyfingu. Þetta er ein besta forvörnin sem hægt er að hugsa sér fyrir börnin okkar og er sagt að besta forvörnin sé sú þegar fjölskyldan ver tíma sínum saman. Hvar er betra að verja honum en í Bláfjöllum? Rekstur Bláfjalla mun vel geta staðið undir sér í framtíðinni og áhrifaríkasta leiðin til þess er að koma á fót snjóframleiðslu á svæðinu sem allra fyrst.
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar