Drög að Icesave samkomulagi kynnt 5. desember 2010 12:01 Lárus Blöndal kynnti nýverið framvindu málsins fyrir þingflokkum stjórnarandstöðunnar.
Drög að nýju Icesave samkomulagi hafa verið kynnt þingflokkum stjórnarandstöðunnar. Samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands stefna að því að ljúka við gerð samnings sem allra fyrst. Lárus Blöndal, fulltrúi stjórnarandstöðunnar í samninganefnd Íslands kynnti framvindu málsins fyrir þingflokkum stjórnarandstöðunnar fyrir skömmu, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þeir stjórnarandstöðuþingmenn sem fréttastofa hefur rætt við segjast ekki munu gefa fyrirfram vilyrði fyrir stuðningi við málið fyrr en þeir sjái lokaniðurstöðu og hafi kynnt sér hana. Á þetta sérstaklega við um framsóknarmenn. Eins og við greindum frá í kvöldfréttum í gær liggja helstu samningsatriði fyrir milli samninganefnda landanna. Enn standa nokkur atriði út af borðinu og er unnið stíft í að fækka ágreiningsatriðum þessa dagana. Fjármálaráðuneytið hefur fengið forystumenn úr atvinnulífinu til liðs við sig í að kynna málið og hvetja þingmenn til að veita drögum að samkomulagi blessun sína. Stóri óvissuþátturinn í málinu er pólitíska hliðin. Óvissan um stuðning við nýtt samkomulag setur strik í reikninginn og líklegt er að málið strandi á því, fremur en á ágreiningi milli samninganefndanna. Ljóst er að málið fer ekki fyrir Alþingi fyrr en menn eru vissir um að mikill meirihluti þingsins styðji það. Stjórnvöld eru tilbúin með andmælabréf til ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, í meginatriðum en margframlendur frestur til andmæla vegna áminningar ESA rennur út á þriðjudag. Í grein á vef Financial Times í dag segir að ef Íslendingar nái samkomulagi við Breta og Hollendinga um Icesave á næstu vikum gæti það haft áhrif langt út fyrir Ísland. Greinarhöfundur segir að ein af ástæðum þess að reynt sé að ná sátt í málinu nú frekar en að fara með það fyrir dómstóla sé sú að stjórnvöld í Evrópu vilji ekki skapa óvissu um hvar ábyrgð á innistæðutryggingum liggi.
Tengdar fréttir Nýtt samkomulag nánast tilbúið Margframlengdur frestur stjórnvalda til að skila svari til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave rennur út á þriðjudag. Mikið er þrýst á þingmenn stjórnarandstöðunnar að veita drögum að nýjum Icesavesamningi blessun sína, svo komast megi hjá því að málið fari fyrir EFTA-dómstólinn. 4. desember 2010 18:29 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Breytingarnar haft verulegt rask á heilbrigðiseftirlit Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Sjá meira
Nýtt samkomulag nánast tilbúið Margframlengdur frestur stjórnvalda til að skila svari til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave rennur út á þriðjudag. Mikið er þrýst á þingmenn stjórnarandstöðunnar að veita drögum að nýjum Icesavesamningi blessun sína, svo komast megi hjá því að málið fari fyrir EFTA-dómstólinn. 4. desember 2010 18:29