Brand: Íslendingar refsuðu okkur fyrir mistökin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. janúar 2010 14:30 Heiner Brand, landsliðsþjálfari Þjóðverja. Mynd/AFP
Heiner Brand, landsliðsþjálfari Þjóðverja, segist ekki hafa miklar áhyggjur af sínum mönnum þrátt fyrir að að þeir hafi tapað tvisvar fyrir Íslandi í æfingaleikjum um helgina. Liðin mættust í Nürnberg á laugardaginn og svo í Regensburg í gær. Í bæði skiptin vann Ísland fjögurra marka sigur. „Ég get bara endurtekið það sem ég sagði í gær. Íslendingar áttu skilið að vinna af því að þeir voru mun klókari og refsuðu okkur grimmt fyrir mistökin sem við gerðum í leiknum," sagði Brand eftir síðari leikinn í gær. „Liðið er þó á uppleið. Það er algjör óþarfi að örvænta og það vita allir sem komið hafa að undirbúningi fyrir stórmót í handbolta. Ég vona að við lærum sem allra mest og sem fyrst af mistökum okkar og að leikirnir hafi því verið okkur góð reynsla," sagði Brand en þýska liðið, rétt eins og það íslenska, undirbýr sig nú fyrir EM í Austurríki sem hefst í næstu viku. Þeir Holger Glandorf og Uwe Gensheimer misstu af leiknum í gær vegna meiðsla en markvörðurinn Johannes Bitter lék sinn fyrsta leik síðan hann gekkst undir litla aðgerð á olnboga fyrir tæpum tveimur vikum síðan. „Ég var ánægðari með sóknarleikinn í dag heldur en í gær - það var betra skipulag á honum. Á hinn bóginn var vörnin ekki jafn góð og þurfum að vinna betur í henni næstu dagana, sérstaklega í fótavinnunni," bætti Brand við að lokum.
Mest lesið Segir Liverpool ekki spila eins og topplið: Spila körfubolta en ekki fótbolta Enski boltinn Kemur dómaranefnd til varnar og hnýtir í Jón og tvíburana Körfubolti Áhrif NFL á ensku úrvalsdeildina: „Eins og heill leikur af föstum leikatriðum“ Enski boltinn Sjáðu kinnhestinn sem felldi Liverpool og þrennu Mbappe Fótbolti Vilja ekki að merki þeirra sé á búningum Ísraelsliðsins Fótbolti Aftur tapar Liverpool Fótbolti Svaf í tuttugu tíma á dag eftir slysið Sport „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Íslenski boltinn Craig Pedersen heldur áfram með íslenska landsliðið Körfubolti Fékk óvart rautt spjald Enski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Sjá meira