Hvað þarf til að ríkisstjórn vakni? Halldór Úlfarsson skrifar 15. desember 2010 14:16 Ríkisstjórn Íslands er að fara dýrustu og verstu leið sem hægt er að fara í málefnum heimilanna. Ef þessi „endanlega" leið sem nú er verið að fara er svona útpæld og góð, af hverju var hún ekki farin fyrir tveimur árum þegar þau tóku við? Nei, þetta er bara ein vitleysan enn; eitt af 50 úrræðum „eftir helgi stjórnarinnar". Það var svo gaman hjá þeim þegar þau tóku við. Steingrímur fór á fullt í Icesave og Samfylkingin á fullt í ESB, en þau gleymdu aðalatriðinu, sem voru heimili landsins og atvinnulífið. Ef það er eitthvað sem ætti að rannsaka hér á Íslandi um þessar mundir, þá er það verkleysi og vankunnátta ríkisstjórnarinnar síðustu tvö ár. Það er nefnilega þannig að þegar mjólkin er súr eða vond þá hellir maður henni niður eða hendir henni. Ríkisstjórnin sem nú situr minnir mann ansi mikið á vondu og súru mjólkina. Það er grátlegt að horfa upp á getuleysi hennar í flestum málum. Nú veit ég að þetta eru ekki nýjar fréttir, en þetta er bara svona og það vita allir Íslendingar nema þingmenn VG og Samfylkingar. Ólína Þorvarðardóttir talar um „úrtölufólk" og þessi sama Ólína sagði einhvers staðar að hún vissi ekki hvað þetta fólk (8 þúsund manns) væri að gera fyrir utan Alþingishúsið 4. okt. sl. Mig langar að segja frú Ólínu að þetta fólk var þarna fyrst og fremst að mótmæla getuleysi ríkisstjórnarinnar í málefnum heimilanna. Annað finnst mér svo ótrúlegt í þessu öllu en það er hvernig fréttamiðlar teikna þetta upp aftur og aftur. Tökum dæmi. Ríkisstjórnin þykist vera með enn eitt snilldar úrræðið og fréttamiðlarnir birta allt ádeilulaust eða í versta falli spyrja þeir Þórólf Mattíasson um hans álit á dellunni og ef einhver segir eitthvað annað en hann þá er það alltaf alveg galin hugmynd. Þingmaðurinn Magnús Orri talar um lýðskrum og svo er alveg yndislegt þegar Árni Páll og Jóhanna tala um samfélagslega ábyrgð eða með öðrum orðum: Gerið eins og við segjum hversu vitlaust sem það er og sýnið með því samfélagslega ábyrgð. Þau eru búin að hafa öll tækifæri í heiminum síðustu tvö ár til þess að taka á lánamálum heimilanna og koma á friði í landinu en þau kjósa áframhaldandi stríð við sitt eigið fólk. Þessi ríkisstjórn hlýtur að hrökklast frá völdum fljótlega og ég skil reyndar ekki hvernig hægt er að stjórna landinu svona illa. Þau áttu að taka á þessum lánamálum strax og þau tóku við. Leiðin sem þau eru að fara núna á eftir að verða þjóðinni miklum mun dýrari þegar upp er staðið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þeir vissu sannleikann en seldu okkur efasemdir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Sérlausnir á grundvelli 349. greinar Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins? Spyrjið Möltu Erna Bjarnadóttir Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Klúðrið hjá Guði Þröstur Hrafnkelsson Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Klúðrið hjá Guði Þröstur Hrafnkelsson skrifar Skoðun Sérlausnir á grundvelli 349. greinar Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins? Spyrjið Möltu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þeir vissu sannleikann en seldu okkur efasemdir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Sjá meira
Ríkisstjórn Íslands er að fara dýrustu og verstu leið sem hægt er að fara í málefnum heimilanna. Ef þessi „endanlega" leið sem nú er verið að fara er svona útpæld og góð, af hverju var hún ekki farin fyrir tveimur árum þegar þau tóku við? Nei, þetta er bara ein vitleysan enn; eitt af 50 úrræðum „eftir helgi stjórnarinnar". Það var svo gaman hjá þeim þegar þau tóku við. Steingrímur fór á fullt í Icesave og Samfylkingin á fullt í ESB, en þau gleymdu aðalatriðinu, sem voru heimili landsins og atvinnulífið. Ef það er eitthvað sem ætti að rannsaka hér á Íslandi um þessar mundir, þá er það verkleysi og vankunnátta ríkisstjórnarinnar síðustu tvö ár. Það er nefnilega þannig að þegar mjólkin er súr eða vond þá hellir maður henni niður eða hendir henni. Ríkisstjórnin sem nú situr minnir mann ansi mikið á vondu og súru mjólkina. Það er grátlegt að horfa upp á getuleysi hennar í flestum málum. Nú veit ég að þetta eru ekki nýjar fréttir, en þetta er bara svona og það vita allir Íslendingar nema þingmenn VG og Samfylkingar. Ólína Þorvarðardóttir talar um „úrtölufólk" og þessi sama Ólína sagði einhvers staðar að hún vissi ekki hvað þetta fólk (8 þúsund manns) væri að gera fyrir utan Alþingishúsið 4. okt. sl. Mig langar að segja frú Ólínu að þetta fólk var þarna fyrst og fremst að mótmæla getuleysi ríkisstjórnarinnar í málefnum heimilanna. Annað finnst mér svo ótrúlegt í þessu öllu en það er hvernig fréttamiðlar teikna þetta upp aftur og aftur. Tökum dæmi. Ríkisstjórnin þykist vera með enn eitt snilldar úrræðið og fréttamiðlarnir birta allt ádeilulaust eða í versta falli spyrja þeir Þórólf Mattíasson um hans álit á dellunni og ef einhver segir eitthvað annað en hann þá er það alltaf alveg galin hugmynd. Þingmaðurinn Magnús Orri talar um lýðskrum og svo er alveg yndislegt þegar Árni Páll og Jóhanna tala um samfélagslega ábyrgð eða með öðrum orðum: Gerið eins og við segjum hversu vitlaust sem það er og sýnið með því samfélagslega ábyrgð. Þau eru búin að hafa öll tækifæri í heiminum síðustu tvö ár til þess að taka á lánamálum heimilanna og koma á friði í landinu en þau kjósa áframhaldandi stríð við sitt eigið fólk. Þessi ríkisstjórn hlýtur að hrökklast frá völdum fljótlega og ég skil reyndar ekki hvernig hægt er að stjórna landinu svona illa. Þau áttu að taka á þessum lánamálum strax og þau tóku við. Leiðin sem þau eru að fara núna á eftir að verða þjóðinni miklum mun dýrari þegar upp er staðið.
Sérlausnir á grundvelli 349. greinar Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins? Spyrjið Möltu Erna Bjarnadóttir Skoðun
Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson Skoðun
Skoðun Sérlausnir á grundvelli 349. greinar Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins? Spyrjið Möltu Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Sérlausnir á grundvelli 349. greinar Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins? Spyrjið Möltu Erna Bjarnadóttir Skoðun
Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson Skoðun