Skólameistari MS fjarlægði fjall af skít af tröppunum á Verzló 14. apríl 2010 07:30 Már Vilhjálmsson, skólameistari MS, mætti sjálfur með skóflu og mokaði upp skítinn sem nemendur hans höfðu sturtað við inngang skólans. Fréttablaðið/GVA „
Ég er mjög leiður og sorgmæddur yfir þessu. Þetta fór algjörlega úr böndunum," segir Már Vilhjálmsson, skólameistari menntaskólans við Sund. Hann mætti ásamt nokkrum kennurum skólans á skólalóð Verslunarskóla Íslands í gærmorgun til að moka upp skít sem nokkrir nemendur MS höfðu dreift við inngang Versló en skólarnir mætast í úrslitum ræðukeppninnar Morfís á föstudaginn í stóra sal Háskólabíós. Már segir rannsókn málsins í fullum gangi innanhúss og hann búist við því að niðurstaða í því verði klár í dag. Finnur Ágúst Ingimundarson, formaður Málfundarfélagsins í Versló, hvatti nemendur í skólanum til að sýna stillingu og grípa ekki til hefndaraðgerða. „Nei, skömmin er þeirra. Við fengum að hjálpa til við að skila skítnum aftur og dreifa honum á túnin, með góðfúslegu leyfi skólameistarans," segir Finnur. Hefð hefur myndast fyrir því að skólar sem mætast í úrslitum Morfís reyni að gera andstæðingum sínum lífið leitt í úrslitavikunni með léttum hrekkjum en Már segir hins vegar að þarna hafi menn farið rækilega yfir strikið. „Menn hafa látið spennuna hlaupa með sig í gönur. Auðvitað er mikill taugatitringur vegna úrslitanna en þetta var ósmekklegt og leiðinlegt fyrir okkur og ekki síst leiðinlegt fyrir Versló," segir Már sem mokaði skítinn upp með skóflur og hjólbörur einar að vopni því ekki gafst tími til að finna aðra menn í djobbið. „Ég er heldur ekkert of góður til að moka skít og maður ber ábyrgð á sínum nemendum. Mér þótti hins vegar vænst um að ný stjórn nemendafélagsins okkar mætti líka og hjálpaði okkur, henni var ekki skemmt yfir þessu." Skólameistarinn bætir því við að nú sé rétti tíminn til að bera á og að skíturinn sem var við inngang Versló hafi verið nýttur til góðs. „Við notuðum hann til að bera á hjá okkur, það var alger óþarfi að henda honum," útskýrir Már og tekur fram að hann sé í góðu sambandi við yfirstjórn Verslunarskólans og hrósar henni fyrir bæði þolinmæði og skilning. „Það gætu verið skemmdir í anddyrinu en við munum bara bæta það." freyrgigja@frettabladid.is
Morfís Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira